SÁÁ

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Fjölskyldumeðferð

Þjónusta fyrir aðstandendur alkóhólista/fíkla

Viðtalsþjónusta er í boði alla virka daga frá kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 – 17:00. Þessa þjónustu geta allir aðstandendur nýtt sér, bæði þeir sem vita að einhver þeim nákominn á við áfengis- og vímuefnavanda að stríða og einnig hinir sem eru í vafa og vilja fá upplýsingar og greiningu. Aðstandendur spilafíkla geta einnig leitað til okkar.  Viðtölin taka oftast um 30 mín. og kosta 1000 kr. Hægt er að panta tíma í síma 530-7600 eða koma og hitta vakthafandi ráðgjafa á ofangreindum tímum.

 

Kynningarfundur SÁÁ í Efstaleiti 7 er alla fimmtudaga kl. 18:00 og kostar ekkert. Kynningin stendur yfir í eina klukkustund og fólk hvatt til að spyrja um hvaðeina sem tengist efninu. Á kynningarfundi er umfang starfs SÁÁ rætt, fíknsjúkdómar og meðvirkni útskýrð.

 

4 vikna fjölskyldumeðferð fyrir aðstandendur áfengis- og vímuefnafíkla

Í meðferðinni er leitast við að auka þekkingu þátttakenda á fíknsjúkdómum, einkennum, birtingarmyndum og hvaða áhrif fíknsjúkdómur getur haft á alla þá sem búa í návígi við hann. Þá er reynt að aðstoða þátttakendur til að hrinda af stað breytingum til bóta innan fjölskyldunnar. Meðferðin er tvisvar í viku (yfirleitt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 til 20:00) í fjórar vikur og kostar 8000 kr.

 

Fyrirlestrar í 4 vikna fjölskyldumeðferðinni eru eftirfarandi:

1.    Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn

2.    Meðvirkni og hvernig hún breytir fjölskyldunni

3.    Meðvirkni og hvernig hún breytir einstaklingnum

4.    Stuðningur sem gerir ástandið verra

5.    Sjálfsvirðing

6.    Sameiginlegt kvöld

7.    Sameiginlegur bati allra í fjölskyldunni

8.    Síðasta kvöldið er Al-anon kynning

 

Boðið er upp á sérstakan stuðningshóp einu sinni í viku eftir að fjölskyldumeðferð lýkur.

 

Helgar fjölskyldumeðferð

Helgarfjölskyldumeðferð er haldin reglulega kostar 7000 kr. Það stendur yfir laugardag og sunnudag frá kl. 9:00-16:30.  Þetta úrræði er sérstaklega ætlað þeim sem búa utan Stórreykjavíkursvæðisins og er reglulega á dagskrá göngudeildanna á Akureyri og í Reykjavík.

 

Fyrirlestrar í helgarmeðferðinni eru: 

 

1.    Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn

2.    Hvernig meðvirkni breytir einstaklingum og fjölskyldum

3.    Óheppilegur stuðningur

4.    Sjálfsvirðingin

5.    Sameiginlegur bati fjölskyldunnar 

 

Upplýsingar um meðferðina eru veittar hjá ráðgjöfum SÁÁ í Göngudeild.  Hægt er að fá upplýsingar og panta tíma hjá þeim í síma 530-7600 eða koma án fyrirvara til vakthafandi ráðgjafa á göngudeild.

 

Foreldrafræðsla á Vogi

Foreldrafræðslan er fyrir foreldra unglinga sem hafa verið í meðferð hjá SÁÁ en einnig fyrir þá foreldra sem eru að byrja að leita sér aðstoðar vegna neyslu, eða gruns um neyslu, unglings. Fundirnir eru á Sjúkrahúsinu Vogi Stórhöfða 45 á þriðjudögum kl. 18:15 – 20:00. Haldin eru framsöguerindi og í kjölfarið á þeim er stuðningshópur. Aðgangseyrir er 1000 kr.

 

Efni framsöguerindanna eru þessi: 

1.    Vímuefni sem unglingar nota og áhrif þeirra

2.    Bataþróun hjá unglingum og íhlutun

3.    Vímuefnameðferð unglinga

4.    Vandi foreldra og þjónusta SÁÁ. Göngudeild - Endurhæfing SÁÁ og eftirmeðferðarheimilin.

 

Sjá ennfremur dagskrá Göngudeildar í Reykjavík og Göngudeildar á Akureyri.

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...