SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Foreldrafræðsla

Kæra foreldri

Við viljum minna á foreldrafræðslu sem er alla þriðjudaga kl. 18:15 á sjúkrahúsinu Vogi. Þar er sérstök fræðsludagskrá fyrir foreldra unglinga sem eru eða hafa verið í meðferð hjá SÁÁ. Þessi fræðsla hentar einnig vel fyrir foreldra sem eru að byrja að leita sér aðstoðar vegna neyslu unglings. Haldin verða framsöguerindi og í lokin verða umræður í stuðninghóp.


Fyrirlestraröðin er þessi: 

  • Vímuefnin sem unglingarnir nota og áhrif þeirra
  • Bataþróun hjá unglingum og íhlutun
  • Vímuefnameðferð unglinga
  • Vandi foreldra og þjónusta SÁÁ. Göngudeild
  • Endurhæfing SÁÁ, eftirmeðferðarheimilin

Aðgangseyrir kr. 1000,- fyrirlestur og stuðningshópur.


Stuðningshópur eftir fyrirlesturinn!

Inn í þennan hóp geta foreldrar komið og fengið upplýsingar, uppörvun og stuðning. Það sem kemur út úr því að stunda slíkan hóp er að foreldrum líður betur og þeir verða hæfari til að takast á við vandann. Foreldrar sem hafa mætt í stuðningshópinn eru ánægðir og bera þessu úrræði góð orð. Stuðningurinn er ótímabundinn, sem þýðir að foreldrar geta tekið þátt eins lengi og þeir vilja.


Kær kveðja,
ráðgjafar á unglingadeildinni, sími 530 7674
 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.