
Fjölskyldumeðferð - fyrir hvern?
Meðferðin er ætluð aðstandendum alkóhólista/fíkla. Það skiptir engu hvort alkóhólistinn/fíkilinn hefur farið í meðferð eða ekki.
Hvenær fer meðferðin fram?
Fjölskyldumeðferðin fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum í fjórar vikur og stendur frá kl 17:30 til kl. 20:00.
Hvað gerist?
Markmið meðferðarinnar er að auka þekkingu þátttakenda á einkennum og áhrifum fíknsjúkdómsins á fjölskylduna og umhverfið. Fræðslan miðar að því, að þátttakendur geri sér betur grein fyrir samskiptum innan fjölskyldunnar sem auðveldar breytingar á viðhorfum þátttakandans, hugsun og hegðun innan fjölskyldunnar.
Til hvers er ætlast?
Við hvetjum alla til að taka virkan þátt í því, sem fram fer í meðferðinni, meðal annars með því að mæta tímanlega og taka tíma milli meðferðarkvölda til að útfylla vinnublöðin. Við biðjum fólk að neyta ekki áfengis á meðan á meðferðinni stendur. Trúnaður skiptir miklu máli og er ætlast til þess að þátttakendur tali ekki við aðra, um þá sem sækja námskeiðið, eða um það sem sagt er á hópfundum.
Ef ég kemst ekki?
Komi til fjarvista meðan á meðferðinni stendur, eru þátttakendur vinsamlegast beðnir að tilkynna það með fyrirvara í síma 530-7600. Skiptiborð SÁÁ er opið frá kl. 09:00-17:00 virka daga.
Sjá nánar um dagskrá í göngudeilda í Reykjavík og á Akureyri.