SÁÁ

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Kynningarfundir

 

Kynningarfundir eru haldnir alla fimmtudaga kl. 18:00 í VON Göngudeild SÁÁ Reykjavík, Efstaleiti 7. Kynningarfundir í Göngudeild Akureyri, Hofsbót 4, eru fyrsta mánudag hvers mánaðar kl. 17:30. Á fundunum er fjallað um starfsemi SÁÁ, fíknsjúkdóma og meðvirkni. Fyrirspurnum er svarað um tengd mál.

 

Flókinn vandi

Áfengis- og vímuefnaneysla hefur verið vaxandi þjóðfélagsvandi á síðustu og þessari öld. Á Vesturlöndum hefur ástandið einkum versnað eftir að ólöglegur vímuefnafaraldur geysaði meðal ungs fólks á sjöunda áratug síðustu aldar. Þrátt fyrir góðan vilja og miklar mótaðgerðir hefur ekki tekist að draga úr þessum vanda svo nokkru nemi. Þegar á heildina er litið hefur áfengis- og vímuefnavandinn aukist alla síðustu öld og fram á þessa. Þessi vandi er ekki aðeins gríðarlegur að vöxtum heldur einnig flókinn og margbreytilegur.  Þess vegna er mikilvægt að tekið sé á vanda áfengis- og vímuefnasjúkra og aðstandenda þeirra á faglegan hátt.

 

Áfengis- og vímuefnavandinn birtist okkur í fjölmörgum myndum eins og slysum, sjúkdómum, afbrotum, fjölskylduvandamálum og persónulegri óhamingju. Sjúkdómur áfengis- og vímuefnafíknar sem fengist er við á sjúkrastofnunum SÁÁ er einn hluti þessa mikla vanda.

 

Sjá ennfremur dagskrár Göngudeildar SÁÁ í Von Reykjavík og Göngudeildar SÁÁ á Akureyri

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...