SÁÁ

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Spilafíklameðferð

Hver er spilafíkill?

Allir sem telja sig hafa vanda vegna fjárhættuspils eiga kost á einkaviðtali við ráðgjafa á Göngudeild SÁÁ, Efstaleiti 7 í Reykjavík eða Hofsbót 4 á Akureyri. Hver sem er getur pantað þar viðtalstíma í síma 530-7600 eða komið fyrirvaralaust og talað við vakthafandi ráðgjafa. Í slíku viðtali er hægt að meta stöðuna og fólk getur haft samráð við fagmann um hvort og hvernig hægt er að glíma við vandann. Engar skuldbindingar fylgja því að fara í slíkt viðtal.

 

Stuðningashópur fyrir spilasjúklinga

Þeir sem vilja takast á við spilafíkn sína eiga kost á að sækja fundi í stuðningshóp sem koma saman vikulega undir stjórn ráðgjafa á Göngudeild SÁÁ. Fundirnir eru nú haldnir alla mánudaga kl. 18:00 og svo á föstudögum kl. 16.00. Til að komast í hóp þarf að fara í einkaviðtal hjá ráðgjafa fyrst. Aðgangur að hópnum er auðsóttur og kostar ekki neitt.  Spilasjúkir á Akureyri takast á við fíkn sína í samvinnu við ráðgjafa SÁÁ þar.

 

Meðferð fyrir spilasjúka

Spilafíklar eiga kost á meðferð við spilasýki sem miða að bata.  Meðferðin fer fram um helgi og er auglýst hverju sinni.  Meðferðin er opin öllum sem telja sig eiga erindi á þau. Markmið meðferðarinnar er að veita fólki fræðslu þannig að skilningur aukist á spilasýki sem vandamáli og hvernig hægt er að ná bata við henni. Í meðferðinni er fjallað um hvernig sjúkdómur spilasýki er, hvernig hann lýsir sér, hvernig hann þróast, hvernig hægt er að ná bata, hvernig best er að fást við streitu og hvernig GA-samtökin (Gamblers Anonymous) nýtast best. Meðferðin samanstendur af fyrirlestrum og hópfundum og stendur föstudag kl. 17:15-19:00, laugardag kl. 9:30-16:00 og sunnudag kl. 9:30-16:00.

 

• Föstudag kl. 17:00-19:00

Kynning, Fyrirlestur - Sjúkdómur spilasýki , Hópvinna

• Laugardag kl. 9:30-16:00

Fyrirlestur - Þróun spilasýkinnar, Hópvinna, Fyrirlestur - Batinn, Hópvinna, GA

• Sunnudag kl. 9:30-16:00

Fyrirlestur - Tekið á með GA, Hópvinna, Fyrirlestur - Streita, Hópvinna, Samantekt & kveðjustund

 

Þjónusta fyrir aðstandendur spilasjúkra

Aðstandendur spilasjúklinga þurfa oft sérstaka aðstoð, hvort sem spilasjúklingurinn glímir við sinn vanda eða ekki. Þeir sem standa spilasjúklingum nærri geta sótt sér ráðgjöf og fræðslu á Göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri. Einkaviðtöl er hægt að panta í síma 530-7600 eða koma fyrirvaralaust í viðtal við vakthafandi ráðgjafa.

 

Sjálfshjálparsamtök - GA og GamAnon

Spilasjúklingar og aðstandendur þeirra eiga sér samtök hliðstæð þeim sem alkóhólistar og aðstandendur þeirra hafa byggt upp (Alcoholics Anonymous og Al-Anon). Spilasjúklingar hafa myndað Gamblers Anonymous eða GA-samtökin og fjölskyldur spilasjúklinga Gam-Anon.

 

Svo má taka lítið SOGS - próf á vefnum en ...

...SOGS-spurningalistinn, South Oaks Gambling Screen, var upprunlega útbúinn af Dr. Henry Lesieur og Dr. Sheilu Blume og lagður fyrir einstaklinga sem voru í eiturlyfja- og áfengismeðferð. Spurningalistinn gegnir því hlutverki að greina einstaklinga sem bera einkenni spilafíknar eða þjást af henni.

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...