
Alhliða meðferðarþjónusta
SÁÁ hefur byggt upp alhliða meðferðarþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra sem býður upp á marga valkosti. Sjúkrastofnanir SÁÁ og reyndar sambýlin líka vinna saman sem ein heild og bjóða fíknisjúklingunum mismunandi meðferð eftir því hver meðferðarþörf þeirra er og hvaða tækifæri sjúklingar hafa. Þannig getur meðferð fíknsjúkra verið allt frá stuttu inngripi á göngudeild upp í að vera viðamikil meðferð á Sjúkrahúsinu Vogi og öðru hvoru endurhæfingarheimilinu í eitt ár með göngudeildarstuðningi og dvöl á sambýli annan eins tíma.
Aðstandendum er fyrst og fremst sinnt í göngudeildum SÁÁ með viðtölum og sérstakri Fjölskyldumeðferð. Fjölskyldumeðferðin tekur fjórar vikur en að auki geta aðstandendur nýtt sér vikulegan stuðningshóp í kjölfar meðferðarinnar.
4 vikna meðferð fyrir aðstandendur
Í 4 vikna meðferð fyrir aðstandendur er leitast við að auka þekkingu þátttakenda á fíknisjúkdómnum, einkennum hans, hvernig hann birtist og hvaða áhrif hann hefur á alla þá sem búa í návígi við hann. Þá er reynt að aðstoða þátttakendur til að hrinda af stað breytingum til bóta innan fjölskyldunnar. Meðferðin er á þriðjudögum og fimmtudögumudögum frá kl. 17:30 til 20:00 og kostar 8000 kr.
Fræðsluerindin í meðferðinni eru eftirfarandi:
1. Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn
2. Meðvirkni og hvernig hún breytir fjölskyldunni
3. Meðvirkni og hvernig hún breytir einstaklingnum
4. Stuðningur sem gerir ástandið verra
5. Sjálfsvirðing
6. Þróun batans – aðstandandi vs fíkill – gestir velkomnir
7. Sameiginlegur bati allra í fjölskyldunni
8. Síðasta kvöldið er Al-anon kynning
Stuðningshópur fyrir aðstandendur eru í boði í framhaldi af 4 vikna meðferðinni.
Nánari upplýsingar fást hjá ráðgjöfum SÁÁ í síma 530-7600.
Helgarfjölskyldumeðferð SÁÁ
Helgarfjölskyldumeðferð SÁÁ er úrdráttur úr 4 vikna meðferðinni og er fyrst og fremst ætluð fólki sem býr utan Reykjavíkur. Hún er sett á dagskrá Göngudeildanna í Reykjavík eða á Akureyri þegar þörf skapast og kostar 7000 kr.
Batahelgi – Bati & ófullkominn bati
Batahelgin fer fram á laugardegi og sunnudegi kl. 09:00 - 16:00 og kostar 7000 kr.
Skilyrði fyrir þátttöku í Batahelginni er að þátttakendur hafi verið alsgáðir og virkir í AA-samtökunum í minnst þrjá mánuði. Ekkert mælir gegn því að hjón (fólk í sambúð) komi saman á Batahelgina, enda verða þau ekki saman í hóp.
Markmið Batahelgarinnar er að auka skilning þátttakenda á bata við alkóhólisma og hjálpa þeim til að glöggva sig á hvar þeir eru staddir í þróun hans. Í kjölfarið ættu þátttakendur að skilja betur en áður, hvaða verkefnum þeir standa frammi fyrir og vera hæfari til að setja sér markmið og fylgja þeim eftir.
Batahelgin er reglulega á dagskrá Göngudeildanna í Reykjavík og á Akureyri.
Hver er spilafíkill?
Allir sem telja sig hafa vanda vegna fjárhættuspils eiga kost á einkaviðtali við ráðgjafa á Göngudeild SÁÁ, Efstaleiti 7 í Reykjavík eða Hofsbót 4 á Akureyri. Hver sem er getur pantað þar viðtalstíma í síma 530-7600 eða komið í Göngudeildina á sínu svæði. Í slíku viðtali er hægt að meta stöðuna og fólk getur haft samráð við fagmann um hvort og hvernig hægt er að glíma við vandann. Engar skuldbindingar fylgja því að fara í slíkt viðtal.
Fyrir foreldra!
Fræðsludagskrá fyrir foreldra unglinga sem eru eða hafa verið í meðferð hjá SÁÁ. Þessi fræðsla hentar einnig vel fyrir foreldra sem eru að byrja að leita sér aðstoðar vegna neyslu unglings. Fundirnir eru á Stórhöfða 45, Sjúkrahúsinu Vogi, alla þriðjudaga og hefjast klukkan 18:15