SÁÁ

Á næstunni

Í dag.........

11. febrúar 2012

14. febrúar 2012

15. febrúar 2012

16. febrúar 2012

21. febrúar 2012

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Fyrir spilafíkla

 

Þjónusta frá 1992

SÁÁ byrjaði að veita spilasjúkum þjónustu frá 1992. Nokkurn tíma tók að koma þessari þjónustu í skorður þar sem aðsóknin var mjög óregluleg í byrjun. Frá því í byrjun ársins 1996 hefur þjónustan verið í föstum farvegi. Á þessum fjórum árum var þjónustan þróuð smátt og smátt, hingað til lands voru fengnir erlendir sérfræðingar til að fræða og þjálfa starfsfólk, ráðgjafar sendir til Bandaríkjanna í námsferðir og gefið út fræðsluritið Spilafíkn - Viðráðanlegur sjúkdómur eftir Pétur Tyrfingsson. Hér verður gerð grein fyrir þeirri þjónustu sem spilasjúklingum stendur til boða.

 

Einkaviðtöl

Allir sem telja sig hafa vanda vegna fjárhættuspils eiga kost á einkaviðtali við ráðgjafa á Göngudeild SÁÁ, Efstaleiti 7 í Reykjavík eða Hofsbót 4 á Akureyri. Hver sem er getur pantað viðtalstíma í síma 530-7600 eða komið fyrirvaralaust og talað við vakthafandi ráðgjafa. Í slíku viðtali er hægt að meta stöðuna og fólk getur haft samráð við fagmann um hvort og hvernig hægt er að glíma við vandann. Engar skuldbindingar fylgja því að fara í slíkt viðtal.

 

Stuðningashópur fyrir spilasjúka

Þeir sem vilja takast á við spilafíkn sína eiga kost á að sækja fundi í stuðningshópum sem koma saman vikulega undir stjórn ráðgjafa á Göngudeild SÁÁ í Reykjavík. Fundirnir eru nú haldnir alla mánudaga kl. 18:00 í Göngudeild SÁÁ Efstaleiti 7. Til að komast í þessa hópa þarf að fara í einkaviðtal hjá ráðgjafa fyrst. Aðgangur að hópnum er auðsóttur og kostar ekkert.  Á Akureyri geta spilasjúkir tekist á við fíkn sína í samráði við ráðgjafa SÁÁ þar.

 

Meðferð fyrir spilasjúka

Spilafíklar eiga kost á meðferð við spilasýki sem miða að bata.  Meðferðin fer fram um helgi og er auglýst hverju sinni.  Meðferðin er opin öllum sem telja sig eiga erindi á þau. Markmið meðferðarinnar er að veita fólki fræðslu þannig að skilningur aukist á spilasýki sem vandamáli og hvernig hægt er að ná bata við henni. Í meðferðinni er fjallað um hvernig sjúkdómur spilasýki er, hvernig hann lýsir sér, hvernig hann þróast, hvernig hægt er að ná bata, hvernig best er að fást við streitu og hvernig GA-samtökin (Gamblers Anonymous) nýtast best. Meðferðin samanstendur af fyrirlestrum og hópfundum og stendur föstudag kl. 17:15-19:00, laugardag kl. 9:30-16:30 og sunnudag kl. 9:30-16:30.

 

Þjónusta fyrir aðstandendur spilasjúkra

Aðstandendur spilasjúklinga þurfa oft sérstaka aðstoð, hvort sem spilasjúklingurinn glímir við sinn vanda eða ekki. Þeir sem standa spilasjúklingum nærri geta sótt sér ráðgjöf og fræðslu á Göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri. Einkaviðtöl er hægt að panta í síma 530-7600 eða koma fyrirvaralaust í viðtal við vakthafandi ráðgjafa.

 

Sjálfshjálparsamtök - GA og GamAnon

Spilasjúklingar og aðstandendur þeirra eiga sér samtök hliðstæð þeim sem alkóhólistar og aðstandendur þeirra hafa byggt upp (Alcoholics Anonymous og Al-Anon). Spilasjúklingar hafa myndað Gamblers Anonymous eða GA-samtökin og fjölskyldur spilasjúklinga Gam-Anon.

 

Það er hægt að nálgast nýjustu upplýsingar um GA fundi í síma 530-7600.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...