SÁÁ

Á næstunni

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Fyrir unglinga

 

Meðferðin sem unglingarnir fá

Unglingarnir og fjölskyldur þeirra snúa sér oftast í byrjun til göngudeilda SÁÁ  í Reykjavík, á Akureyri eða til nýju göngudeildarinnar á Vogi. Þar eru unglingarnir og fjölskylda þeirra búin undir væntanlega meðferð sem hefst, líkt og hjá öðrum, á Sjúkrahúsinu Vogi. Þar er gerð læknisfræðileg, geðlæknisfræðileg og sálfræðileg greining á vanda þeirra og framhaldinu hagað samkvæmt niðurstöðum greininganna.

 

Móttaka unglinganna gjörbreyttist í byrjun árs 2000 þegar Unglingadeildin á Vogi tók til starfa og biðlistar hurfu. Hægt var að sinna öllum beiðnum um innlögn með litlum eða engum fyrirvara. Einkum kom þetta þeim unglingum til góða sem nýlega höfðu verið í meðferð hjá samtökunum. Þeir unglingar sem leita til SÁÁ eru gjarnan tvístígandi gagnvart því hvort þeir eigi að vera eða fara. Hegðun þeirra hefur um langan tíma einkennst af verulegum mótþróa gagnvart ráðleggingum fullorðins fólks. Það sem ræður því úrslitum í upphafi meðferðar er hvort tekst að tryggja samstarfsvilja þeirra. Besta aðferðin til að tryggja hann er að tala um fyrir unglingunum með sérstakri aðferð og leyfa þeim að koma og fara þegar þeir vilja.


Meðferðarmótþrói

Til að vinna markvisst gegn meðferðarmótþróa unglinganna hefur Starfsfólk Unglingadeildarinnar lagt mikla vinnu í að þróa nýjar aðferðir til að nota í meðferðarviðtölum. Starfsmennirnir nota sérstaka tækni sem kallar unglingana til aukinnar ábyrgðar og styður þá til að  taka upp nýja lífsstefnu. Ef mótþrói er mikill er beitt sérstöku viðmóti sem er í eðli sínu vinsamlegt og sýnir unglingnum fulla virðingu. Í viðtölunum er unglingnum haldið í miðpunkti um leið og hann er hvattur til góðara ákvarðana og verka. Þessi viðtalstækni hefur reynst mjög vel. Auk þess hefur verið hugað vel að framkomu allra starfmanna og umhverfinu sem unglingunum er skapað. Allt er þetta gert til að auka samstarfsvilja unglinganna.

 

Fylgikvillar

Meðferðin sem unglingarnir fá á Vogi hefur verið endurbætt og stóraukin. Yfirstjórn þessarar meðferðar er í höndum lækna sem taka unglingana í að minnsta kosti eitt læknaviðtal meðan á meðferðinni stendur og sjá um útskrift þeirra. Þegar tekið er tillit til þess úr hvers konar vímuefnaneyslu unglingarnir koma má ljóst vera að læknismeðferðar er þörf vegna fráhvarfa og fylgikvilla. Slík þjónusta er veitt á Vogi af starfsfólki sem hefur bæði reynslu og þekkingu á fráhvörfum enda þurfa margir unglinganna lyfjameðferð vegna þeirra. Gera þarf rannsóknir á þeim með hliðsjón af fylgikvillum eins og lifrarbólgum og öðrum sjúkdómum. Þannig hefur komið í ljós að rúmlega 5% ungmennanna á aldrinum 15-19 ára greinast með kynsjúkdóminn klamydíu og fá meðferð við honum. 4 einstaklingar greindust með C-lifrarbólgu úr þessum aldurshópi 1998 og 10 árið 1999 og 12 árið 2000.

 

Bindindi

Vímuefnameðferðin sem miðar að varanlegu bindindi er borin uppi af áfengis- og vímuefnaráðgjöfum sem hafa langa reynslu í unglingameðferð. Unglingarnir fá mikla fræðslu sem er við þeirra hæfi. Hópmeðferð er stór liður í dagskránni en þó er lögð megináhersla á viðtöl bæði meðferðarviðtöl og greiningarviðtöl. Markmiðið með fræðslunni, viðtölunum og hópmeðferðinni er að tryggja samstarfsvilja unglinganna til að fara í bindindi og  læra að fást við fíkn, streitu, erfiðar aðstæður og tilfinningar. Hjúkrunarfræðingar kenna unglingunum slökun og fræða þá um heilbrigt líferni í víðasta skilningi þess orðs og tala un heilbrigða lífshætti hvað varðar mataræði, svefn og hreyfingu. Í fræðslunni sem allar starfsstéttir taka þátt í er komið inn á ýmis mál eins og ábyrgt kynlíf, getnaðarvarnir og smitvarnir gegn alnæmi og lifrarbólgu.

 

Vakt allan sólarhringinn

Sérstakir starfsmenn eru til taks og á vakt allan sólarhringinn á Unglingadeildinni, ýmist eru þetta hjúkrunarfræðingar, læknanemar, áfengisráðgjafar eða sjúkraliðar og veita þeir unglingunum mikla uppörvun og stuðning um leið og þeir fylgjast vel með öllu og leggja sitt af mörkum til góðrar sjúkdómsgreiningar og sálfræðilegs mats. Unglingageðlæknir starfar við deildina í hálfu starfi og vikulega kemur geðlæknir frá Barna- og unglingadeild háskólasjúkrahússins og gefur sérfræðiálit um sjúklinga og leggur á ráðin með starfsfólki deildarinnar. Við Unglingadeildina er mikil sálfræðiþjónusta í höndum tveggja klínískra sálfræðinga sem vinna þar í hlutastarfi.Þeir gera sálfræðigreiningar auk þess sem þeir hefja þar sálfræðimeðferð.

 

Fræðslufundir - fjölskyldunámskeið

Aukin áhersla hefur verið lögð á að fá foreldra og forráðamenn unglinganna til að taka þátt í meðferðinni. Fræðslufundir eru haldnir vikulega á Vogi fyrir foreldra og þar gefst þeim tækifæri til að hitta og tala við lækna, unglingageðlækni, sálfræðinga og áfengisráðgjafa sem vinna við Unglingadeildina. Öllum foreldrum er auk þess boðið að taka þátt í fjölskyldunámskeiði sem ætlað er aðstandendum áfengis- og vímuefnasjúkra.

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...