Staðsetning
Sjúkrahúsið Vogur er staðsett að Stórhöfða 45 í Reykjavík, (beint á móti málningarverksmiðju Hörpu) sjá kort hér að neðan, og stendur við Grafarvoginn. Notið fyrri inngang, ekki hringdyr.
Viðtöl
Rannsóknin beinist enn fremur að mögulegum erfðafræðilegum tengslum fíknsjúkdóma við aðrar geðraskanir eins og t.d. þunglyndi og kvíða. Til að meta þessi tengsl eru þátttakendur beðnir um að koma í geðgreiningarviðtal. Spurningarnar snúast m.a. um líkamlega heilsu, geðheilsu, og svo er farið náið yfir áfengis og vímuefnanotkun. Sérþjálfaðir spyrlar taka viðtölin sem vara allt frá tveimur til þriggja klukkustunda. Viðtölin fara fram að Efstaleiti 7, í nýja fjölskylduhúsi SÁÁ, Von.
Móttaka
Þegar þátttakendur koma er tekið á móti þeim í afgreiðslu, og þeim vísað í móttökuherbergi þar sem þeim eru afhent þau gögn sem eiga við, s.s. samþykki til undirritunar, spurningalistar til að svara, eða boðið í viðtal. Þegar samþykki hefur verið undirritað og öll gögn útfyllt er tekið blóðsýni sem er sent til rannsóknar hjá Íslenskri erfðagreiningu, sem er samstarfsaðili rannsóknarinnar. Að lokum eru þátttakendur leystir út með lítilli gjöf.
Starfsmenn
Hjá SÁÁ starfar samstilltur hópur að rannsókninni, sem hefur það hlutverk að standa að skipulagningu á klínískum hluta erfðarannsóknarinnar, og meðal annars safna heilsufarsupplýsingum og blóðsýnum. Hópurinn samanstendur af áfengisráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum, riturum, læknum og sálfræðingi.
Starfsmenn eru:
Bryndís Ólafsdóttir (hjúkrunarfr.)
Ingunn Hansdóttir (sálfræðingur)
Magnús Einarsson (ráðgjafi)
Svanhvít G. Jóhannsdóttir (læknaritari)
Valgerður Rúnarsdóttir (læknir)
Þóra Björnsdóttir (hjúkrunarfr.)
Þórarinn Tyrfingsson (aðalábyrgðarmaður)
Frekari upplýsingar um rannsóknina eru veittar af starfsólki rannsóknar í eftirfarandi símanúmerum: 530-7651 (ritarar), 824-7601 (Magnús) og 824-7608 (Ingunn). Einnig er hægt að senda fyrirspurnir til starfsfólks á rannsokn@saa.is