SÁÁ

Á næstunni

Í dag.........

11. febrúar 2012

14. febrúar 2012

15. febrúar 2012

16. febrúar 2012

21. febrúar 2012

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Göngudeildin í Reykjavík

 

Von, Efstaleiti 7 

SÁÁ hefur frá stofnun haldið úti viðamikilli göngudeildarþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra. Göngudeildin var í fyrst til húsa í Lagmúla 7. Í fyrstu var þessi starfsemi rekin í náinni samvinnu við Áfengisdeild Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg og SÁÁ fluttu síðan göngudeildina í ný húsakynni SÁÁ, að Síðumúla 3-5. Nú hefur Göngudeild SÁÁ í Reykjavík flutt í nýtt húsnæði við Efstaleiti 7 í Reykjavík. Húsið er glæsilegt 1500 fermetrar og hýsir auk göngudeildarinnar, skrifstofur samtakanna, rannsóknarstarf og forvarnadeild.

 

Á göngudeild SÁÁ hefur allt frá árinu 1987, verið veitt umfangsmesta meðferðarþjónusta fyrir aðstandendur áfengis- og vímuefnafíkla á landinu. Þetta starf hófst í samvinnu við Reykjavíkurborg og var fyrirmyndin að starfinu sótt beint til Heizeldensofnunarinnar í Minisota. SÁÁ hefur eitt staðið að  þessari þjónustu frá árinu 1989.

 

Göngudeildin býður öllum áfengis- og vímuefnafíklum mikinn stuðning og eftirfylgni eftir að þeir ljúka meðferð á Vogi, Vík eða Staðarfelli. Framhaldsmeðferðin sem þar fer fram er viðamikil og mismunandi.

 

Algengt er að fólk leiti sér fyrst upplýsinga og aðstoðar á göngudeildinni í Efstaleiti og oft er hægt að leysa vandann án þess að til innritunar á Vog þurfi að koma. Á hverju ári eru um 20.000 heimsóknir í göngudeildina og í hverri viku eru flutt þar um 16 fræðsluerindi. Starfsmennirnir þar hafa auk þess veitt ýmis konar þjónustu í skólum og fyrirtækjum í gegnum árin.  

 

Göngudeildarþjónusta fyrir áfengissjúklinga og aðra vímuefnafíkla

SÁÁ hefur á undanförnum árum stóraukið göngudeildarþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þessari þjónustu má skipta í grófum dráttum í þrennt: í fyrsta lagi fræðsla og undirbúningur þeirra sem eru á leið í meðferð, í öðru lagi stuðning við þá sem eru að koma úr áfengismeðferð og í þriðja lagi þjónusta sem ætlað er að koma í staðin fyrir meðferðina á stofnunum.

 

Fræðsla og undirbúningur fyrir vímuefnafíkla sem eru á leið í meðferð og upplýsingar fyrir aðstandendur þeirra, hefur aukist verulega vegna aukins fjölda unglinga og ungmenna sem koma til meðferðar. Undirbúa verður þá ungu betur en þá eldri og upplýsa þarf foreldra þeirra. Þessi þjónusta fer fyrst og fremst fram í viðtölum og með kynningarfundum á göngudeildinni í Síðumúla eða á göngudeildinni á Vogi. 

 

Endurhæfing á göngudeild- M- hópur 

Flestir stjórnmálamenn á Vesturlöndum eru sammála um að nauðsynlegt sé að draga úr sjálfvirkri hækkun útgjalda til heilbrigðismála. Í kjölfar þess hefur orðið mikil umræða hér á landi um rekstur sjúkrahúsa og sjúkrastofnanna, sem sumstaðar hefur leitt til breytinga á rekstrarfyrirkomulaginu. Aðalbreytingarnar sem orðið hafa eru þær að fólk sem áður fékk þjónustu á stofnunum fær nú þjónustuna á göngudeildum.

 

Til að mæta aukinni meðferðarþörf með sem minnstum kostnaði, var komið á fót göngudeildarmeðferð hjá SÁÁ 1996, sem ætlað er að koma í staðin fyrir hefðbundna endurhæfingarmeðferð á Staðarfelli eða Vík. Í þessari meðferð mætir fólk 4 kvöld í viku fyrsta mánuðinn en síðan einu sinni í viku í tólf skipti. Meðferðin tekur því í allt um 4 mánuði. 

 

Í hverjum meðferðartíma er fyrirlestur, verkefnatími og hópmeðferð. Slík meðferð hentar vel þeim sem búa á Reykjarvíkursvæðinu, eru eldri en 25 ára og hafa nægilega góðar aðstæður og líkamlega heilsu. Þeir fara nú í göngudeild að lokinni stuttri dvöl á Vogi í stað þess að dvelja inniliggjandi meðferð í fjórar vikur á Staðarfelli eða á Vík. Við þetta losna meðferðarrými á Staðarfelli og Vík. Alls nýttu 143 einstaklingar sér þessa meðferð árið 1996. Þessi meðferð lofar mjög góðu fyrir þá sem geta nýtt sér hana. Brottfall er þó mun meira en á Staðarfelli og Vík eða 17% í fyrstu vikunni.

 

Rétt er einnig að hafa í huga að sjúklingum geta nægt viðtöl og hópmeðferð á göngudeild án þess að þurfa að fara á sjúkrahúsið Vog, einkum af þeir hafa verið í meðferð áður. Hundruð skjólstæðinga SÁÁ nýttu sér þetta á hverju ári. Göngudeildarstarfið hjá SÁÁ sparaði með þessum mörgum skjólstæðingnum fyrirhöfn og þjóðfélaginu mikla fjármuni. 

 

Göngudeildarþjónusta getur því stundum komið í stað meðferðar þar sem dvalist er á stofnunum. Miklu oftar kemur þó göngudeildarþjónusta ein ekki til greina vegna félagslegra aðstæðna eða veikinda sjúklingsins. En þá er göngudeildin nauðsynleg til að auka árangur að lokinni stofnanameðferð.

 

Framhaldsmeðferð og eftirfylgni

Ef vímuefnasjúklingar sækja göngudeild eftir meðferð á stofnunum eykst árangur þeirra um allan helming. Það er því nauðsynlegt að sem flestir geti fengið stuðning eftir að meðferð á Vogi, Vík eða Staðarfelli lýkur. Stærstur hluti göngudeildarstarfs SÁÁ vinnur að þessu markmiði og nú er svo komið að flestir eiga þess kost að sækja göngudeild í að minnsta kosti fjóra mánuði eftir meðferð á stofnun. Þetta eykur árangurinn og sparar mikla fjármuni.  

 

Meðferð fyrir spilafíkla í göngudeild SÁÁ

Spilafíkn er langvinnur og alvarlegur sjúkdómur sem verður æ algengari á Vesturlöndum með auknu frjálsræði í fjárhættuspilum. Skilningur á þörf fyrir sérstaka meðferð fyrir spilafíkla hefur aukist þó að flestum þyki framandi að líta á spilafíkn sem sjúkdóm. Spilafíklar hafa löngum verið í vímuefnameðferð hjá SÁÁ enda eru margir vímuefnasjúklingar jafnfram spilasjúkir, eða öfugt. Með tilkomu spilakassa með háum vinningi eftir 1990 hefur þessi vandi aukist og orðið meira áberandi í íslensku þjóðfélagi.

 

Fyrsta tilraun SÁÁ til að mæta þörfum spilafíkla sérstaklega var gerð 1992. Boðið var upp á viðtöl og reynt að koma af stað hópmeðferð. Erfitt var að halda þessari þjónustu uppi vegna breytilegrar og lítillar aðsóknar. Til að reyna að bæta úr og auka kynningu á vandanum og þeirri þjónustu sem SÁÁ veitir var Robert Hunter, Ph.D, boðið til Íslands í júní 1994. Hunter er heimskunnur brautryðjandi í spilafíklameðferð og hefur unnið við slíkt í Las Vegas í tuttugu ár. Hann vakti athygli á þessum máli í fjölmiðlum og með almennum borgarafundi í Reykjavík. Auk þessa hélt hann námskeið fyrir starfsfólk SÁÁ og gerði tillögur um meðferðarúrræði fyrir stjórn SÁÁ.

 

Í framhaldinu var spilafíklum veitt viðtalsmeðferð og áfram reynt að byggja upp hópmeðferð. Árið 1995 fóru tveir ráðgjafar SÁÁ á námskeið um meðferð við spilafíkn í Bandaríkjunum. Sama ár gaf SÁÁ út fræðslurit um spilafíkn eftir Pétur Tyrfingsson.

 

Það var þó ekki fyrr en í ferbrúar 1996 sem tókst að koma af stað stöðugum meðferðarhópi fyrir spilafíkla í göngudeild SÁÁ. Í þeim mánuði kom hingað frá Las Vegas, Howard O. Cornbleth, sem er brautryðjandi í spilafíklameðferð. Hann hefur starfað við meðferð í 20 ár. Cornbleth hélt námskeið fyrir ráðgjafa og starfsfólk SÁÁ. Hann stjórnaði einnig námskeiði sem haldið var fyrir spilafíkla og aðstandendur þeirra.

 

Síðan þetta var, hefur vikulegur stuðningshópur fyrir spilafíkla verið í gangi. Þessi hópur er nú orðin mjög stöðugur og stunda hann að jafnaði 10-15 einstaklingar. Stuðningshópur fyrir aðstandendur spilafíkla hefur ekki verið eins stöðugur en er þó oft vel virkur auk þess sem margir aðstandendur spilafíkla sækja sé meðferð á fjölskyldunámskeiðunum.

Í nokkrum tilvikum eru spilafíklar lagðir inn á sjúkrahúsið Vog. Þá er andlegt ástand þeirra talið mjög slæmt og jafnvel hætta á sjálfsvígi ef ekkert er að gert. Vikulegir fundir G.A. og Gam-anon samtakanna eru í húsnæði göngudeildar SÁÁ í Efstaleiti 7 Reykjavík. 

 

Göngudeildarþjónusta fyrir aðstandendur vímuefnafíkla og spilafíkla 

Það reynir mjög á alla í fjölskyldunni þegar einn úr henni verður fíkinn í vímuefni eða fjárhættuspil. Allir sem standa fíklunum nærri þurfa fræðslu og stuðning. Auk þessa getur álagið oft orðið svo mikið og langvinnt hjá þeim sem næst standa, að þeir verða beinlínis veikir og þurfa meðferð.

 

Frá upphafi hefur SÁÁ sinnt þessari mikilvægu þjónustu og frá árinu 1978 hafa verið haldin meðferðarnámskeið fyrir aðstandendur, auk þess sem boðið hefur verið upp á einstaklingsráðgjöf og stuðningshópa. Þessi starfsemi hefur verið einn mikilvægasti þáttur göngudeildarstarfsins og er unnin í nánum tengslum við meðferðarstarfið. Þannig er flestum nánum aðstandendum þeirra sem í meðferð eru, kynnt og boðin þessi þjónusta. Auk þjónustunnar sem veitt er á sérstökum meðferðarnámskeiðum, hafa aðstandendur verið hvattir til að taka þátt í meðferð ástvina sinna, koma í viðtöl, á fyrirlestra og taka þátt í hópmeðferð í tengslum við stofnanameðferð vímuefnafíklanna. Þetta er einkum áberandi í kvennameðferðinni.

 

Í Reykjavík eru haldin tvenns konar meðferðarnámskeið fyrir aðstandendur. Annars vegar eru það hefðbundin námskeið, sem haldin eru á kvöldin tvisvar sinnum í viku og standa í fjórar vikur. Hins vegar er um að ræða helgarnámskeið. Helgarnámskeiðin eru einkum fyrir þá sem eiga ekki eins heimangengt eða búa út á landi. Slík námskeið eru haldin reglulega í Reykjavík og á Akureyri

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...