48 manna stjórn 2011-2012

Aðalstjórn samtakanna skipa 48 menn. Kjörtími stjórnarmanna er þrjú ár og skulu 16 kjörnir á hverjum aðalfundi auk 7 varamanna til eins árs. Endurkosning stjórnarmanna er heimil. Kjörgengir eru, auk einstaklinga sem aðild eiga að samtökunum, fyrirsvarsmenn félaga sem aðild eiga. Séu slíkir menn kjörnir í stjórnina sitja þeir út kjörtíma sinn þó þeir hætti sem fyrirsvarsmenn þess félags sem aðildina á að samtökunum.
Framkvæmdastjórn skal skipuð 9 mönnum sem aðalstjórn kýs úr sínum hópi til eins árs á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund. Skal formaður kosinn sérstaklega og er hann jafnframt formaður aðal-stjórnar, að öðru leyti skiptir framkvæmdastjórn með sér verkum. Framkvæmdastjórnarfundir teljast löglegir ef 5 framkvæmdastjórnarmenn mæta.
Smellið á Excel skjal til að fá upplýsingar um aðalstjórn SÁÁ 2011-2012