|
|
 |
Afmælisráðstefna SÁÁ 2011
Haldin dagana 6-7 október í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti |
|
SÁÁ hefur árum saman haldið ráðstefnu í tengslum við afmælisfundinn í Háskólabíó. Að þessu sinni verður sjónum beint að kjarnanum í rekstri SÁÁ; meðferðinni sjálfri. Allar þær stéttir sem koma að fjölfaglegri meðferðinni munu meta stöðuna; hvað hafi vel tekist og reynist enn vel, hvað þurfi að aðlaga breyttum aðstæðum sjúklingahópsins og hvar megi gera betur. Fyrirlestrar verða fluttir af læknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum, félagsráðgjöfum og fleirum — og munu allir vanda sig við að tala ekki inn í eigin stétt heldur þvert á móti þannig að aðrar stéttir og leikmenn geti skilið.
Þessi ráðstefna er því ekki aðeins ætluð fagmönnum sem vinna við áfengis- og vímuefnameðferð heldur öllu áhugafólki um áfengis- og vímuefnavandann — því það er okkur áfengis- og vímuefnasjúklingum mikilvægt að hér þróist og eflist góð meðferð samhliða styrkingu 12 spora-samtaka og hertri réttindabarátta og eyðingu fordóma.
Aðgangur ókeypis. |
| 09.00-09.45 |
Áfengis- og vímuefnasjúklingurinn |
|
Sigurður Gunnsteinsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi |
| 09.45-10.30 |
Ráðgjafinn - þroski, þróun, reynsla |
|
Hjalti Björnsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi, dagskrárstjóri á Vogi |
| 10.45-11.15 |
Þjálfun sjúkraliðans í starfi á Vogi – Þverfagleg vinna og geta til að segja nei. |
|
Gunnar Friðriksson sjúkraliði |
| 11.15-12.00 |
Sjúkdómur áfengis- og vímuefnafíknar - aukin þekking, breytt viðhorf |
|
Þórarinn Tyrfingsson læknir |
| 12.00-13.00 |
Hlé |
| 13.00-13.45 |
Pabbi, ertu hættur að drekka? |
|
Hvernig er hægt að aukaforeldrahæfni áfengis- og vímuefnasjúklinga og maka þeirra eftir meðferð ?
Lárus Blöndal sálfræðingur |
| 13.45-15.00 |
Unglingaþjónusta SÁÁ - núverandi þjónusta og framtíðarsýn |
|
Umræður að loknum stuttum framsögum 10. mín
Þórarinn Tyrfingsson, læknir : Faraldsfræði og árangur meðferðar
Ásgrímur Jörundsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi: Hvað má gera betur nú þegar ?
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ : Framtíðarsýn |
| 15.15-15.45 |
Mikilvægi skráningar og tölvuvinnslu í sjúklingavinnu og rannsóknum |
|
Magnús Einarsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi |
| 15.45-16.10 |
Tóbaksfíkn |
|
Sverrir Jónsson læknir |
| 16.30-17.15 |
Vogur Sjúkrahús – tími breytinga |
|
Valgerður Rúnarsdóttir læknir |
|
... |
|
|
| 09.00-09.45 |
Hvernig áfengis- og vímuefnameðferð og AA- samtökin vinna saman |
|
Gísli Stefánsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi dagskrárstjóri á Staðarfelli |
| 09.45-10.30 |
Á að útdeila nálum og sprautum til fíkla og gera þeim kleift að sprauta sig við góðar aðstæður |
|
Umræður að loknum stuttum framsögum 10. mín
Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri: Hvernig er staðan ?
Valgerður Rúnarsdóttir læknir:Hvað er hægt að gera ? |
| 10.45-11.15 |
Hverjir leita í göngudeild og hvað er hægt að gera? |
|
Hörður Oddfríðarson áfengis- og vímuefnarágjafi, dagskrárstjóri göngudeildar |
| 11.15-11.45 |
Þverfagleg samvinna með augum hjúkrunarfræðingsins |
|
Halla Logadóttir hjúkrunarfræðingur og Ásdís Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur |
| 11.45-12.15 |
Gerum við nógu mikið fyrir veikustu sjúklingana? |
|
Valgerður Rúnarsdóttir læknir |
| 12.15-13.00 |
Hlé |
| 13.00-13.45 |
Meðferð fyrir amfetamínfíkla |
|
Páll Bjarnason áfengir- og vímuefnaráðgjafi |
| 13.45-14.30 |
Hugræn atferlismeðferð |
|
Jónas Haukur sálfræðingur |
| 14.30-15.00 |
Meðferð fyrir aðstandendur |
|
Helga Óskarsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi |
| 15.20-15.45 |
Fyrirmyndir |
|
Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi, dagskrárstjóri göngudeildar á Akureyri |
| 15.45-16.30 |
Síðhvörf með augum læknisins |
|
Hver er hugræn geta áfengis- og vímuefnasjúklingsins þegar hann hefur lokið afeitrun
Hildur Þórarinsdóttir læknir |
| 16.30-17.15 |
Áfengis- og vímuefnameðferð SÁÁ - hugmynda og þekkingargrunnur |
|
Þórarinn Tyrfingsson læknir |
|
|
|
 |
 |
|
Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin. |

 |
|
Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram. |
|