Allt frá árinu 1987 hafa sjúkrastofnanir SÁÁ boðið endurkomufólki upp á sérstök meðferðarúrræði sem henta vel stórum hluta endurkomufólks. Slík meðferð fer fram á endurhæfingarstofnun í fjórar vikur að afeitrun og greiningu lokinni. Eftir stofnana-meðferðina fá sjúklingarnir eftirfylgni og meðferð í eitt ár.
Með árunum er þó að verða ljóst að meira þarf til og í þessari samantekt kemur fram að á Sjúkrahúsið Vog leita um 200 einstaklingar á árinu 2003 sem þurfa meiri þjónustu og meðferð en hægt er að veita þeim við núverandi aðstæður. Þörf er á úrbótum.
Úr gagnagrunninum á Vogi fást upplýsingar sem hrekja þær fullyrðingar sem oft hafa heyrst af hálfu embættismanna, heilbrigðisstarfsmanna og leikmanna sem fjallað hafa um áfengis- og vímuefnameðferð í gegnum árin að hjá SÁÁ sé alltaf sama fólkið og lítill árangur sé af meðferðinni þar.
Ef tölurnar eru skoðaðar sést að stór hluti sjúklinganna hefur komið 3 sinnum eða sjaldnar til meðferðar hjá SÁÁ frá árinu 1977 eða 13.492 einstaklingar, um 80% sjúklinganna.
Fjöldi einstaklinga sem hafa innritast á Sjúkrastofnanir SÁÁ frá því í desember 1977 og til loka ársins 2003 eru 16.965 einstaklingar, 12.282 karlar og 4.683 konur. 545 núlifandi Íslendingar hafa innritast 10 sinnum eða oftar á Sjúkrahúsið Vog af þeim komu 213 til meðferðar árið 2003. 55 konur og 158 karlar. Þetta er sá hópur sjúklinga sem fjallað verður um í þessari samantekt eða 3,2% hópsins. Þeir mynduðu 12% sjúklingahópsins á Vogi árið 2003. Hér eftir verða þeir nefndir endurkomukarlar og –konur eða endurkomufólk.
|
Endurkomur á Sjúkrahúsið Vog
Á árunum 1977 til 2003 |
|
|
|
|
|
|
|
Komur |
Karlar |
% |
Konur |
% |
Alls |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
1 |
6280 |
51% |
2387 |
51% |
8667 |
51% |
|
2 til 5 |
4611 |
38% |
1801 |
38% |
6412 |
38% |
|
6 til 10 |
922 |
8% |
342 |
7% |
1264 |
7% |
|
Oftar en 10 |
469 |
4% |
153 |
3% |
622 |
4% |
|
Alls |
12.282 |
|
4.683 |
|
16.965 |
|
89% skjólstæðinga hafa komið 5 sinnum eða sjaldnar til SÁÁ á undanförnum 25 árum. 622 einstaklingar eða 3,6 % hafa komið 10 sinnum eða oftar og af þeim eru 77 nú látnir eða 12,4%. 12 konur og 65 karlar. 545 núlifandi Íslendingar hafa komið 10 sinnum eða oftar.