- Einungis 27% af þessum hópi hefur næganlega góða geðheilsu og andlegt atgervi til geta nýtt sér meðferð SÁÁ.
- Af afeitrun lokinni þurfa rúmlega 70 % meiri þjónustu en núverandi meðferð SÁÁ getur boðið upp á.
Við mat á geðheilsu og andlegu atgerfi sjúklinganna 213 var farin sú leiða að flokka sjúklingana í hópa með sérstöku tilliti til þess hvers konar meðferð hentar þeim. Í sjúkraskýrslum um þetta fólk liggja fyrir miklar upplýsingar og sjúkdómsgreiningar sem gerðar hafa verið á Vogi og öðrum sjúkrastofnunum, bæði geðgreiningar og aðrar sjúkdómsgreiningar auk þess sem ferill þessa fólks er skráður yfir mörg ár.
Heilastarfsemi og geðheilsa
|
Karlar
|
%
|
Konur
|
%
|
Alls
|
%
|
|
Nægilega góð fyrir núverandi meðferð SÁÁ |
43 |
28% |
13 |
24% |
56 |
27% |
|
Verulegur skaði vegna mikillar
og langvarandi vímuefnaneyslu |
41 |
27% |
12 |
22% |
53 |
25% |
|
Afbrotahneigð |
19 |
12% |
2 |
4% |
21 |
10% |
|
Verulega alvarleg persónuröskun |
30 |
19% |
20 |
36% |
50 |
24% |
|
Virkur og alvarlegur geðsúkdómur |
14 |
9% |
8 |
14% |
22 |
10% |
|
Greindarskerðing |
8 |
5% |
|
|
8 |
4% |
|
Alls |
155 |
|
55 |
|
210 |
|
Þeir sem sagðir eru hafa nógu góða heilastarfsemi fyrir SÁÁ meðferðina mundu eflaust flestir fá einhvers konar geðgreiningu ef stækkunargler geðlæknanna væri á þá sett. Áfengis- og vímuefnameðferð sem stenst faglegar kröfur getur vel annast fólk með ýmsar geðgreiningar svo sem persónuraskanir, kvíðaraskanir, óyndi og þunglyndi og veitt slíku fólki nógu góða meðferð. Hjá SÁÁ fá þessir sjúklingar bæði lyfjameðferð og atferlismeðferð við sitt hæfi í meðferðinni.
Fólkið sem greint er með virkan og alvarlegan geðsjúkdóm eru sjúklingar sem greinst hafa með sveiflusjúkdóm eða geðklofa og geta þess vegna ekki nýtt sér meðferð SÁÁ nema að litlu leyti og þurfa jafnframt meiri geðmeðferð og eftirfylgni af hálfu geðlækna en SÁÁ getur veitt við núverandi aðstæður. Þessi hópur getur þurft á innlögn að halda á stundum á geðdeild þegar geðsjúkdómurinn versnar eða tekur sig upp að nýju og á sama hátt geta þeir þurft á afeitrun að halda þegar þeir hefja vímuefnaneyslu. Að afeitrun lokinni þurfa þessi sjúklingar á geðlæknisþjónustu að halda og oft einnig á félagslegri þjónustu í skyndi.
Einstaklingarnir sem flokkast með alvarlega persónuröskun hér hafa mun alvarlegri sjúkdóm en almenna persónuröskun samkvæmt almennum greiningarskilyrðum. Þessir einstaklingar hafa það alvarleg einkenni að þeir hafa verið algjörlega óvirkir á flestum sviðum frá ungum aldri og hafa ýmis einkenni um geðsjúkdóma. Þeir þurfa því svipaðri þjónustu og þeir sem greinst hafa með virka geðsjúkdóma.
Þeir sem flokkast hér með afbrotahneigð eru einstaklingar sem eiga að baki langan afbrotaferil og hafa setið endurtekið í varðhaldi og uppfylla því mun strangari skilyrði en almennt gilda um antisocial personality disorder.
Greindarskertu einstaklingarnir hér eru einstaklingar sem hafa greind á milli 70-90 . Einn þeirra hafði skaðast vegna höfuðáverka. Þeir geta í flestum tilfellum nýtt sér meðferð SÁÁ að einhverju leyti en þurfa mun meiri stuðning að meðferð lokinni og oft fylgja þeir ekki sjúklingahópnum í öllu og þurfa einstaklingsbundnari meðferð og tíma en hinir.
Þeir sem greindir eru hér verulega skaðaðir af áfengisneyslu bera augljós merki persónuleikabreytingar ef litið er til margra ára sem rekja má til framheilaskaða. Atferli þeirra einkennist fyrst og fremst af hömluleysi og verulega skertum úrlausnarhæfileikum. Þeir þurfa á að halda langri stofnanameðferð 3-6 mánuðir.