- Um 13.500 einstaklingar eða 80% sjúklingahóps SÁÁ hafa komið 3 sinnum eða sjaldnar til meðferðar
- 550 núlifandi Íslendingar hafa komið 10 sinnum eða oftar til meðferðar eða rúm 3% sjúklingahópsins
- 213 af þessum endurkomusjúklingum komu á Vog 2003. Upplýsingar um þá liggja nú fyrir
Þegar upplýsingar um þennan hóp eru skoðaðar kemur í ljós að hópurinn er í það mikilli og blandaðri vímuefnaneyslu að mikil þörf er á afeitrunarmeðferð sem ekki er hægt að framkvæma með fullu öryggi nema á sjúkrastofnun þar sem fyrir er stöðug hjúkrunarvakt og læknisþjónusta.
Geðheilsa hópsins er með þeim hætti að full þörf er á eftirliti af hálfu lækna meðan á afeitrun stendur og geðlæknisfræðilegu inngripi ef þörf er á. Stórum hluta hópsins getur stafað hætta af trúboði óupplýstra og ólærðra öfgatrúarmanna meðan á afeitrun stendur.
Meiri hluti hópsins eða um 70 % þarf meiri þjónustu að afeitrun lokinni en núverandi meðferð SÁÁ getur boðið upp á. Ástæðan er mjög léleg félagsleg staða og færni fólksins ásamt lélegri líkamlegri og andlegri heilsu. Þetta gerir það að verkum að núverandi meðferð, sem hentar flestum sem á Vog koma er of hröð og átakamikil fyrir þetta fólk. Þörf er á sérúrræðum fyrir þennan hóp sem eðlilegast er að SÁÁ veiti.