SÁÁ

Tillögur SÁÁ til útbóta

 

Tillögurnar sem hér koma miðast bæði við úrbætur fyrir þann hóp sem fjallað er um í þessari samantekt og eru einnig hugsaðar til þess að hægt sé að grípa fyrr og með áhrifaríkari hætti inn í sjúkdómsþróun þeirra sjúklinga sem eru á sömu braut.

 

Leggja þarf fé til viðhaldsmeðferðarinnar á Vogi og byggja þá starfsemi upp með mun meiri samvinnu en nú er við Landlæknisembættið og í áframhaldandi samvinnu við Geðdeild Landspítalans.

 

Koma þarf upp sambýli fyrir þennan sjúklingahóp í næsta nágrenni við Sjúkrahúsið Vog.  Þar þarf að vera meira aðhald og félagslegur stuðningur en nú er veittur við sambýli SÁÁ. Vegna nálægðarinnar við Sjúkrahúsið Vog  gæti starfsfólk þar veitt sambýlinu nauðsynlega þjónustu. Til að sinna sjúklingunum í þessu sambýli, þeim sem eru með geðraskanir og 18 ára og eldri á Sjúkrahúsinu Vogi þarf að ráða geðlækni í hálft starf við Sjúkrahúsið Vog. Félagsráðgjafa þarf einnig að ráða til starfa við sambýlið og Vog.

 

Nauðsynlegt er að veita veikustu sjúklingunum sem leita til SÁÁ langtíma inniliggjandi meðferð. Þó að vísir sé að slíku nú þegar þarf betri aðstöðu til að lengja inniliggjandi meðferðina upp í nokkra mánuði ef þörf er á. Góð aðstaða er fyrir konurnar á Vík og einungis þarf að fjölga ráðgjöfum þar um einn. Aðstöðuna fyrir karlana þarf að bæta á Staðarfelli svo hægt sé að fjölga sjúklingum um 10 og ráðgjöfum um tvo.

 

 Óskað er eftir eftirfarandi stuðningi Heilbrigðisráðuneytisins og Landlæknisembættisins

  1. Stuðning við viðhaldsmeðferðina
  2. Stuðning við sambýlisrekstur við sjúkrahúsið Vog með aukinni þjónustu við skjólstæðingana frá því sem nú er.
  3. Stuðning við langtímameðferð fyrir konur og karla.

  

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...