SÁÁ
26. mars 2010 / 08:53
Senda á Facebook

Gleði og þakklæti

Geir Ólafsson og Gunnar Hrafnsson

 

Húsfyllir og mikil gleði og fögnuður var á styrktartónleikum SÁÁ í Vonarsalnum 25. mars, þar sem landsfrægir skemmtikraftar og listamenn komu fram og skemmtu fólki með söng og hljóðfæraleik. Allir þeir sem fram komu og einnig þeir sem unnu að þessum tónleikum gerðu það endurgjaldslaust. 

 

Þeir sem fram komu voru Geir Ólafsson, Ragnar Bjarnason, Þorgeir Ástvaldsson, Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson, Gunnar Hrafnsson, Arngrímur Sigmarsson, Íris Guðmundsdóttir, Kristján Jóhannsson og Egill Ólafsson.

 

Hér má skoða nokkar ljósmyndir í myndaalbúmi.

 

SÁÁ þakkar í stuðninginn.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.