Efling styrkir SÁÁ

29. apríl sl samþykkti aðalfundur Eflingar-stéttarfélags að veita SÁÁ styrk upp á krónur tvær milljónir. Segir í samþykkt fundarins að styrkur þessi sé veittur til eflingar starfsemi SÁÁ sem staðið hefur í brjóstvörn áfengis- og vímuefnaforvarna á Íslandi frá 1977.
Styrkur þessi er veittur úr sjúkrasjóði Eflingar sbr 12. grein en þar segir „Ennfremur er sjóðnum heimilt að styrkja stofnanir eða félagasamtök sem sinna heilbrigðis-mannúðar- eða réttindamálum.“
SÁÁ þakkar stuðninginn. Peningarnir renna óskiptir í styrktarsjóð SÁÁ en tilgangur sjóðsins er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð. Með því er reynt að koma í veg fyrir að áfengis- og vímuefnasjúklingar fái ekki tilhlýðilega meðferð vegna fátæktar.
Á myndinni eru Þórarinn Tyrfingsson formaður SÁÁ Sigurður Bessason formaður Eflingar.