Allar í form fyrir sumarið

Allar konur sem sækja þjónustu SÁÁ eru velkomnar í kvennaleikfimina sem kennd er í VON. Agnes Amalía Kristjónsdóttir kennir almenna kvennaleikfimi og STOTT PILATES mánudaga og miðvikudaga kl. 09:00 - 09:50.
Á mánudögum er farið er í almenna leikfimi svo sem styrktaræfingar, þolþjálfun, líkamsbeitingu, einföld dansspor, teygjur og slökun á gólfi og á dýnu.
Miðvikudaga eru kenndar grunnæfingar í STOTT PILATES, sjá www.stpilates.is
Allar konur geta verið með óháð fyrri reynslu af líkamsrækt.
Upplýsingar hjá Agnesi Amalíu agnes@centrum.is