.

Álfurinn fyrir unga fólkið – Álfasala SÁÁ 26.-30. maí
Hin árlega Álfasala SÁÁ fer fram 26.-30. maí næstkomandi. Þá verður sölufólk SÁÁ á ferli um allt land og selur Álfa til styrktar starfi samtakanna í þágu ungs fólks.
Álfasalan (nú í 21. sinn) er mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna og hefur á undanförnum árum gert okkur kleift að halda úti lítið skertri þjónustu við unga fíkla og fjölskyldur þeirra þrátt fyrir umtalsverðan tekjusamdrátt í núverandi árferði.
Að þessu sinni verða tveir álfar boðnir til sölu – Álfur og Álfamey, ýmist saman eða sitt í hvoru lagi, á 1500 kr stykkið eða 3000 krónur saman.
Vinsamlegast hikið ekki við að hafa samband ef einhverra upplýsinga eða aðstoðar er óskað. Sölufólk hafi samband við Hilmar í síma 824 7646.