Fundi Heiðursmanna frestað

Þar sem Uppstigningardag ber upp á næsta fimmtudag, 13. maí, þá er fyrirhuguðum fundi Heiðursmanna SÁÁ frestað til fimmtudagsins 20. maí.
Heiðursmenn SÁÁ er félagsskapur velunnara SÁÁ sem hittast reglulega og vinna að hagsmunamálum SÁÁ. Heiðursmenn SÁÁ hittast annan hvern fimmtudag á Vogi til að ræða landsins gagn og nauðsynjar og taka á móti gestum.
Þeir sem hafa áhuga á starfi Heiðursmanna geta haft samband við netfangið heidursmenn@saa.is eða SÁÁ í síma 530 7600.