IOGT styrkir Styrktarsjóð SÁÁ

Framkvæmdastjóri IOGT, Aðalsteinn Gunnarsson, kom nýlega í heimsókn til SÁÁ í Von Efstaleiti. Tilefni heimsóknarinnar var fjárstyrkur IOGT til Styrktarsjóðs SÁÁ, sem afhentur var á aðalfundi IOGT, svæðisráðs þann 4. maí.
"Bindindissamtökin IOGT á Íslandi ætla að kynna starfsmönnum og þeim sem koma að þeim sem fara í meðferð, hvað er í boði hjá IOGT. Þannig er hægt að sýna þeim sem eru aftur á leið út í vímulaust líferni hvaða leiðir eru færar. Í dag er ekki mikil þekking á starfi IOGT og þarf að bæta þá þekkingu."
Lesa meira á heimasíðu IOGT