SÁÁ
18. maí 2010 / 08:25
Senda á Facebook

Lokun frestað

 

Á árinu 2010 er SÁÁ ætlað að reka allt göngudeildarstarf fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga fyrir 40 milljónir króna. Kostnaðurinn við göngudeildarstarfið er áætlaður rúmlega 100 milljónir króna. Það var því ljóst að þrátt fyrir hækkun komugjalda yrði að draga þjónustuna verulega saman og loka göngudeildinni á Akureyri.

 

Átak í álfasölu

 

Nú nýlega ákvað Akureyrarbær að leggja göngudeildinni á Akureyri til um 50% af kostnaði deildarinnar. Þess vegna ákvað framkvæmdastjórn SÁÁ að reyna í góðri samvinnu við bæjarráð Akureyrar og íbúana á svæðinu að tryggja rekstur göngudeildarinnar. Ráðist verður í sérstakt átak þess vegna í kringum álfasöluna.

 

Lokun á göngudeildinni á Akureyri sem átti að koma til framkvæmda 1. júní nk. er því frestað að sinni.

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.