SÁÁ
28. maí 2010 / 10:38
Senda á Facebook

Álfasalan er í þessari viku

 

Álfasalan 2010 hefst á miðvikudagskvöld 26. maí og stendur út vikuna.

 

Þessa daga munu hundruð sjálfboðaliða ganga í hús og hitta fólk á torgum og götum úti og bjóða Álfinn til stuðnings meðferðarúrræðum fyrir ungt fólk undir yfirskriftinni Álfurinn – fyrir unga fólkið.

 

Að þessu sinni eru tveir álfar í boði – Álfur og Álfamey. Parið kostar 3000 krónur en einstakur Álfur 1500 krónur – eða eins og hálfur annar sígarettupakki.

 

En Álfurinn mun hafa sig í frammi víðar en á götum og torgum. Sérstök Fésbókarsíða hefur verið opnuð og þar stofnaðir viðburður og áhangendaklúbbar þar sem fólk er hvatt til að virkja Fésbókarvini sína og aðra ættingja og vini til að taka þátt í þessu þjóðþrifaverkefni.

 

Auglýsingar á vefsíðum helstu fréttamiðla vísa á stað til að kaupa „sýndarálf“ – með einum músarsmelli flyst notandinn yfir á www.mittframlag.is þar sem hægt er að kaupa sýndarálf með kostakjörum.

 

Það er ljóst að vegna sveitastjórnarkosninganna á laugardaginn og yfirvofandi Evróvisjón-keppni á Álfasalan í harðri samkeppni um athygli og áhuga almennings. Þeim mun meiri þörf er á sem flestum höndum til að leggja hönd á plóg og tryggja að Álfasalan 2010 verði hin öflugasta frá upphafi.

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...