SÁÁ
31. maí 2010 / 11:03
Senda á Facebook

Klifur og lasertag

Bruce Willis

 

Starfsmannafélag SÁÁ bauð starfsmönnum SÁÁ til skemmtidags s.l. fimmtudag í Skemmtigarðinum í Grafarvogi. Mætti þar múgur og margmenni, starfsmenn SÁÁ, makar og börn og gerðu sér glaðan dag við hina ýmsu leiki s.s. klifur, lasertag, hoppukastala,  paintball o.fl.

 

Góð mæting var og mikil gleði og kátína. Fóru sumir hamförum í paintball á meðan aðrir gerðu sér að góðu hamborgara og pylsur.

 

Jón Börkur var með myndavélina á lofti og fangaði stemminguna, sjá myndaalbúm.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.