SÁÁ
31. maí 2010 / 21:14
Senda á Facebook

Aðalfundur SÁÁ

 

Aðalfundur SÁÁ verður haldinn miðvikudaginn 2. júní klukkan 17:00 í Efstaleiti 7, Reykjavík.

 

Á aðalfundi skulu þessi mál tekin til umræðu og afgreiðslu:

  1. Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi samtakanna á liðnu starfsári.
  2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og samþykktar.
  3. Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær.
  4. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og varaendurskoðenda.
  5. Tekin ákvörðun um félagsgjöld.
  6. Önnur mál. 

Aðalstjórn samtakanna skipa 48 menn. Kjörtími stjórnarmanna er þrjú ár og skulu 16 kjörnir á hverjum aðalfundi auk 7 varamanna til eins árs.

 

Framkvæmdastjórn skal skipuð 9 mönnum sem aðalstjórn kýs úr sínum hópi til eins árs á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund. Skal formaður kosinn sérstaklega og er hann jafnframt formaður aðalstjórnar, að öðru leyti skiptir framkvæmdastjórn með sér verkum.

 

Höfuðtilgangur Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann er að útrýma vanþekkingu og fordómum á áfengisvandamálinu og hafa áhrif á almenningsálitið með fræðslu um eðli sjúkdómsins alkóhólisma og að starfrækja afvötnunar- og endurhæfingarstöðvar fyrir alkóhólista og aðra vímuefnamisnotendur.

 

Sjá nánar í lögum félagsins.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.