Súðvíkingar gefa sölulaun

Álfasalan gekk vel í Súðavík. 75 álfar fóru þangað vestur og seldust allir og af þeirri sölu eru sölulaun kr. 22.500, sem Súðavíkingar vilja að fari í styrktarsjóð fyrir alkóhólista sem ekki geta greitt fyrir meðferð.
Sölustjóri Súðvíkinga er Rósa Ólafsdóttir og eru henni færðar sérstakar þakkir fyrir hönd SÁÁ.