SÁÁ
10. júní 2010 / 10:19
Senda á Facebook

Aðalfundur - stjórnarfundur

 

Aðalfundur SÁÁ var haldinn miðvikudaginn 2. júní. Þórarinn Tyrfingsson flutti skýrslu stjórnar og lagðir voru fram endurskoðaðir reikningar til samþykktar. Engar tillögur um lagabreytingar lágu fyrir.

 

Aðalstjórn samtakanna skipa 48 menn. Kjörtími stjórnarmanna er þrjú ár og eru 16 kjörnir á hverjum aðalfundi auk 7 varamanna til eins árs.

 

Þórarinn Tyrfingsson var endurkjörinn formaður SÁÁ á fyrsta stjórnarfundi aðalstjórnar og skipuð var 9 manna framkvæmdastjórn sem aðalstjórn kýs úr sínum hópi til eins árs á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund.

 

Hér má skoða lista stjórnar, myndaalbúm og framkvæmdastjórn

 

 

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.