Sumarlokun göngudeilda

Starfsfólk Göngudeilda SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri fer í sumarfrí frá og með mánudeginum 28. júní 2010. Deildirnar verða lokaðar fram til þriðjudagsins 3. ágúst 2010. Símanúmer SÁÁ er 530-7600.
Sumarlokun
- 5.7.2010 15:54:18
Góðan dag
Mig langar að benda á óánægju mína með það að það skuli vera sumarlokun á sama tíma í Reykjavík og Akureyri. Finnst að fólk ætti að eiga þess kost að geta leitað til Reykjavíkur þegar það er lokað á Akureyri og svo til Akureyirar þegar það er lokað í Reykjavík. Geri mér samt sem áður grein fyrir því að þetta er ekki svona einfalt, varðandi kostnað og annað. En það skiptir bara svo miklu máli að fólk komi ekki að lokuðum dyrum því það er nógu erfitt fyrir fólk í þessum aðstæðum að viðurkenna vanda sinn og leita sér aðstoðar. Það er svo hætt við að það fari allt í baklás og hætti við að sækja sér aðstoð þegar það kemur að lokuðum dyrum. Annars langar mig að þakka fyrir gott starf og ómælda vinnu hjá ykkur.
Bestu þakkir
Aðstandandi alkoholista
Engar upplýsingar um sumarlokun þegar hringt er til SÁÁ
Ég er líka aðstandandi alkóhólista og ég hringdi á göngudeildina dögum saman til að ná sambandi. Þegar hringt er í símanúmer SÁÁ eru ekki veittar neinar upplýsingar um að göngudeildin sé lokuð, heldur sagt að fólk geti náð sambandi við göngudeild með því að ýta á 2. Síðan kemur ekkert svar. Svona slæm þjónsuta nær engri átt!
Aðstandandi
Vegna sumarlokana
- 27.7.2010 12:56:15
Þakka ykkur fyrir athugasemdirnar, við munum hafa þær til hliðsjónar í framtíðinni. Við hjá SÁÁ gerum okkur auðvitað grein fyrir því að sumarlokanir hafa áhrif og helst vildum við komast hjá þeim. Ég bið ykkur afsökunar ef upplýsingar hafa ekki verið nægar eða símsvari hefur gefið villandi svör.
Hörður J. Oddfríðarson, dagskrárstjóri Göngudeildar í Reykjavík