SÁÁ
27. júlí 2010 / 09:40
Senda á Facebook

Fjölskylduhátíð SÁÁ um Verslunarmannahelgina

 

30. júlí til 2. ágúst að Hlöðum Hvalfjarðarströnd.

 

Fjölbreytt skemmtiatriði alla helgina

Geirmundur Valtýsson – diskótek – félagsvist – bingó – barnadagskrá – diskó fyrir börnin – ratleikur – söngvakeppni – varðeldur – dansleikir – AA fundur og NA fundur – hugvekja

 

Aðgangseyrir krónur 4.500 – frítt inn fyrir börn 14 ára og yngri.

 

Nánari upplýsingar veitir Hilmar í síma 8247646. Öll hjálp við undirbúning vel þegin.

Til baka...
- 14.7.2010 10:49:43 Hvar eru allir rock/poppararnir ? :)
Anna

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.