Samtal um alkóhólisma og karlmennsku
SÁÁ kynnir Samtal um alkóhólisma og karlmennsku miðvikudaginn 9. febrúar kl. 20.30 í Von, húsi samtakanna að Efstaleiti 7. Þar munu hefja samtalið þeir Valdimar Örn Flygenring leikari, Stefán Máni rithöfundur og Sæmundur Pálsson togarajaxl. Þeir munu velta upp í framsögum ýmsum birtingamyndum karlmennsku, fyllerís, slagsmála og groddaskapar; drengskapar, uppreisnar, ögrunar, vesældóms og sjálfsvorkunnar. Hvaða áhrif hafa fyllibyttur allra tíma haft á ímynd karlmennsku? Geta alvöru menn gefist upp og skriðið í meðferð? Er edrúistinn hinn tamdi maður? Geta töffarar dansað ófullir?
Eftir inngangsorð þeirra félaga gefs fólki í salnum tækifæri á blanda sér í samtalið með innleggi, spurningum eða vangaveltum. Allir eru velkomnir og það kostar ekkert inn. SÁÁ hvetur alla, konur sem karla, að eyða upplífgandi kvöldstund í góðra vinahópi.
Samtalið hefst kl. 20.30 miðvikudagskvöldið 9. febrúar í Von, húsi SÁÁ að Efstaleiti 7.
Næsta miðvikudagskvöld þar á eftir, 16. febrúar, mætir Benedikt Erlingsson leikari á þurran miðvikudag og ræðir um áhrif meðvirkni og 12 spora kerfa á íslenskt leikhús. Vikuna þar á eftir kemur Erlingur Brynjólfsson sagnfræðingur og heldur erindi um kvenfólk og brennivín og fjallar meðal annars um hvernig konur nýttu sér fyrrum áfengi til að móta ímynd hinnar sterku konu og um breytingu þeirrar ímyndar á liðinni öld.