SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
14. júlí 2011 / 13:06
Senda á Facebook

Norður-írskir læknar vilja hækka áfengi

Norður-írska deild bresku læknasamtakanna sendi frá sér áskorun á miðvikudaginn til stjórnvalda um tafarlausir aðgerðir til sporna við skaðsemi áfengis á samfélagið. Læknarnir leggja til að hertar verði reglur um opnunar- og afgreiðslutíma, áfengisauglýsingar verði bannaðar og áfengisgjald verði hækkað.


Í ályktun læknanna segir að kostnaður samfélagsins af ofneyslu áfengis sé á bilinu 92-163 milljarðar króna – en tæp 1,8 milljón manns búa á Norður Írlandi. Að baki þessum tölum er áætlaður beinn kostnaður heilbrigðiskerfis, löggæslu og fangelsa auk tapaðra vinnustunda og félagslegra áhrifa.


Læknarnir segja auðveldast að draga úr þessum skaða með því að hefta aðgengi. Þeir mæla sérstaklega með því að hækka verðið því það hafa góð áhrif á tvennan hátt. Í fyrsta lagi dregur hækkunin úr drykkju alls þorra fólks en síðan enn frekar úr drykkju þeirra sem mest drekka (þeir kaupa mest og hækkunin vegur þyngst hjá þeim) og þeim yngstu (þeir hafa minnst fjarráð).


Í ályktun læknanna kemur fram að rannsóknir sýni að verðhækkanir hafi skjót áhrif til fækkunar ofbeldisafbrota, færri dauðsfalla vegna lifrarbilunar og færri dauðsfalla í umferðinni.

 

Tillögur Norður-Írsku læknanna eru næstum eins og tillögur skosku deildarinnar í bresku læknasamtökunum. Skotarnir vildu þó heimila áfengisauglýsingar á börum og þar sem það er til sölu en frændur þeirra á Írlandi vildu banna slíkt einnig.


 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.