SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Frétt / 
11. október 2011 / 06:08
Senda á Facebook

SÁÁ sent aftur fyrir þar síðustu kreppu

Andi og efnisbönd:

Stytta Einars Jónssonar fyrir framan innganginn á Vogi

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2012 er kynntur enn frekari niðurskurður á framlögum til SÁÁ. Í þetta sinn er hann 2,5 prósent. Það kann einhverjum að finnast lág tala á þessum síðustu tímum; en þegar hún leggst ofan á umtalsverðan niðurskurð á fjárlögum margra undangenginna ára og mikinn samdrátt í öðrum tekjum samtakanna er ljóst að framundan er umtalsverð skerðing á heilbrigðisþjónustu til áfengis- og vímuefnasjúklinga.

 

Þetta er ekki stefna sem stjórnvöld tóku upp í Hruninu 2008. Þetta er stefna sem stjórnvöld hafa haldið í gegnum allar ríkisstjórnir og alla heilbrigðis- og velferðarráðherra allt frá síðustu aldamótum og jafnvel lengur. Framlög til SÁÁ í frumvarpi til fjárlaga 2012 eru lægri en verðbætt framlög til samtakanna samkvæmt fjárlögum aldamótaársins. Stjórnvöld eru því ekki að fara fram á að SÁÁ færi rekstur sinn aftur fyrir síðasta góðæri heldur allt aftur fyrir netbóluna um aldamótin.

 

“Áfengis- og vímuefnasjúklingar og aðstandendur þeirra verða að gera sér grein fyrir að niðurskurður síðustu ára á framlögum til SÁÁ kemur í framhaldi af langvarandi samdrætti í þátttöku ríkisins í heilbrigðisþjónustu þessa hóps;” segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ.

 

Til að fá sama framlag og samkvæmt fjárlögum 2002, fyrir tíu árum, þyrfti að hækka framlagið til SÁÁ um 13,4 prósent eða 87 milljónir króna. “Það eru örugglega ekki margar stofnanir ríkisins sem fá slíkar kveðjur frá ríkisvaldinu,” segir Gunnar Smári. “Þrátt fyrir sameiningu ráðuneyta er þessu til dæmis öfugt farið hjá aðalskrifstofu velferðarráðuneytisins. Framlög til hennar samkvæmt frumvarpinu er 13,8 prósent hærra en fyrir tíu árum. Svona færist kerfið hægt og bítandi frá að vera velferðarkerfi sjúklinga í að verða velferðarkerfi skrifstofumanna.”

 

Verðbreytingar gefa hins vegar ekki rétta mynd af afleiðingum þessara stefnu á áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þörfin fyrir þjónustu SÁÁ er ekki ein og óbreytt heldur vex með fjölgun íbúa í landsins. Þegar tekið er tillit til fólksfjölgunar kemur í ljós að það þyrfti að auka framlög til SÁÁ um 170 milljónir króna eða um rúm 26 prósent til að færa stöðuna tíu ár aftur í tímann.

 

En þar sem áfengis- og vímuefnasýki breiðist út með aukinni neyslu áfengis og vímuefna er ekki nóg að bera framlögin saman við verðlag og mannfjölda; heldur þarf að taka tillit til neyslunnar einnig. Og hún hefur vaxið hratt og örugglega undanfarna áratugi. Ef framlög til SÁÁ ættu að halda í við mannfjölda og neyslu þyrfti að auka þau um 50 prósent eða um 323 milljón króna svo hún yrði samanburðarhæf við framlagið í fjárlögum 2002. Í raun þarf að fara aftur til upphafsára SÁÁ til að finna á þessum grundvelli jafn veikan stuðning við samtökin og þau fá í frumvarpi til fjárlaga næsta árs.

 

“Í þessu krystallast afleit áfengisstefna stjórnvalda undanfarna áratugi,” segir Gunnar Smári. “Aukinni neyslu og fólksfjölgun á þéttbýlissvæðum, sem sagan segir að eykur mjög áfengis- og vímuefnavandann, er mætt með kerfisbundnum samdrætti í áfengismeðferð og annarri þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Það má segja að stjórnvöld hafi stefnt markvisst í óefni.”

 

Þegar framlög til SÁÁ eru borin saman við önnur framlög til velferðarmála kemur í ljós að áfengis- og vímuefnasjúklingar hafa ekki notið sömu hækkana og aðrir hópar. Ef SÁÁ fengi sama hlutfall af framlögum til velferðarmála og fyrir tíu árum þyrfti að hækka þau um 34 prósent eða um 221 milljón króna. Og ef við förum tuttugu ár aftur í tímann vantar SÁÁ 311 milljónir króna, um 48 prósent, til að halda í við aðra velferðarþjónustu.

 

“Þetta er náttúrlega ömurlegt fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga að átta sig á að niðurskurður undanfarinna ára er aðeins lokahnykkur á áratuga aðför að rétti og hagsmunum þessa hóps,” segir Gunnar Smári. “Ég held að við verðum að vakna og átta okkur á að fordómar gagnvart okkar hópi eru ekki að dragast saman og hverfa heldur er þvert á móti að vaxa og dafna. Að láta sér detta í hug að skera niður framlög til áfengis- og vímuefnameðferð í kreppu kórónar síðan heimskuna og óréttlætið.”

 

Þar sem framlög til velferðarmála eru í dag hlutfallslega minni í dag en fyrr á árum verður samanburður á framlögum til SÁÁ enn óhagstæðari ef miðað er við öll útgjöld ríkisins. Ef SÁÁ ætti að fá sama hlutfall af ríkisútgjöldum og fyrir tíu árum þyrfti að hækka þau um 293 milljónir króna og um 380 milljónir króna til að jafna framlögin árið 1992.

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.