SÁÁ
Viðburður / 
6. desember 2011 / 00:06
Senda á Facebook

Góðir gestir Kjarnakvenna SÁÁ

Vigdís Grímsdóttir,

les upp úr bók sinni  "Trúir þú á töfra" sem er nýkomin út.

Vigdís Grímsdóttir rithöfundur og Guðmunda Elíasdóttir söngkona verða gestir Kjarnakvenna miðvikudaginn 7. desember klukkan 19:30 til 20:30.

 

Vigdís, höfundur bókarinnar "Trúir þú á töfra" sem er nýkomin út og Guðmunda, sem á endurútkomnar endurminningar, "Lífsjátning", sem Ingólfur Margeirsson heitinn skráði og var metsölubók, lesa upp úr bókum sínum og spjalla við gesti.

 

Kjarnakonur SÁÁ eru hópur kvenna sem eru óvirkir alkóhólistar og aðstandendur alkóhólista. Kjarnakonur hittast vikulega, á miðvikudögum í Von Efstaleiti 7,  kl. 19:30 – 20:30.

 

Fjölmennum og tökum með okkur gesti.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.