SÁÁ
Frétt / 
13. desember 2011 / 00:10
Senda á Facebook

Verð á vímuefnum lækkar

 

Verð á vímuefnum hefur farið lækkandi undanfarin tvö ár, samkvæmt verðmælingum sem SÁÁ gerir meðal sjúklinga á Vogi. Þessar verðkannanir hafa verið gerðar mánaðarlega síðan um aldamót og sýna vel verðþróun á þessum markaði.

 

Þegar litið er yfir tímabilið allt kemur í ljós að vímuefnaverð hélt í við verð á áfengi allt fram yfir efnahagshrunið 2008. Þegar áfengi hækkaði vegna gengisfalls krónunnar og hækkunar áfengisgjalds elti vímuefnaverðið þessa hækkun. En í ársbyrjun 2010 skildi á milli í fyrsta skipti og á meðan áfengi hélt áfram að hækka lítillega lækkaðu vímuefnin umtalsvert. Og sú lækkun hefur haldið.

 

Til að gefa einfalda mynd af þróuninni sýnum við í töflu I. þróun vegins meðaltals vímuverðs annars vegar og vegið meðaltal áfengisverðs hins vegar.

Þessi meðaltöl eru einföld. Í meðaltali vímuefnaverðs eru vímuefnin vegið saman miðað hlutdeild efnanna greiningar á sjúklingum á Vogi. Þannig vegur hass og gras 49 prósent, amfetamín 34 prósent og önnur efni minna. Áfengismeðaltalið er enn einfaldara. Það samanstendur af Egils Gull og Smirnoff vodka og er þetta tvennt vegið saman miðað við ársneyslu á bjór annars vegar og sterku áfengi hins vegar. Þótt útbúa mætti flóknari meðaltal þá er er það líklega óþarft sökum þess hversu þungt áfengisgjald og gengi krónunnar vegur í útsöluverði. Verð á flestöllum tegundum sveiflast með sambærilegum hætti.

 

Það má lesa af línuriti I. hvernig vímuefnaverðið eltir áfengisverð alveg fram að ársbyrjun 2010. Þá lækkar vímuefnaverðið.

 

 

 

   Línurit I: Samanburður vegins meðalverðs áfengis og vímuefna frá aldamótum

Nú er það opið fyrir túlkun hverju þetta sætir. Því miður hafa engar hagfræðilegar rannsóknir verið gerðar á vímuefnamarkaðnum á Íslandi. Erlendar rannsóknir benda hins vegar til að þessi markaður sé mjög næmur fyrir verðsveiflum. Við sjáum þetta vel í áfengissölunni.

Mikil og langvarandi lækkun áfengisverðs frá aldamótum og fram að Hruni — tæp 25 prósent á föstu verðlagi — leiddi til rúmlega 50 prósent meiri sölu, talið í áfengislítrum. 26 prósent verðhækkun eftir Hrun hefur síðan leitt til samdráttar í sölu sem nemur um 12,5 prósentum.

 

 

   Línurit II: Verðþróun meðalverð áfengis- og vímuefna miðað við fast verðlag

Verðþróun áfengis og vímuefna á föstu verðlagi má lesa betur af línuriti II. Þar sést verðþróunin frá aldamótum á föstu verðlagi. Þar sést að áfengisverð lækkar hægt og örugglega allt frá aldamótum og fram til október 2008. Þá hækkar áfengi vegna hækkunar áfengisgjalds — en þó ekki meira en svo að það verði jafn dýrt og um aldamótin. Verð á vímuefnum elta ætíð áfengisverðið — en ekki almennt verðlag — alveg frá aldamótum, í gegnum Hrunið og veðhækkanir — en síðan skilur á milli í ásrbyrjun 2010. Þá tekur vímuefnaverðið að lækka. Það hefur ekki verið lægra síðan mælingar hófust.

 

En hverju sætir?

 

Eins og heyrst hefur í fréttum að undanförnu hafa bjórframleiðendur og áfengisinnflytjendur þrýst á um að áfnegisgjald verði lækkað til ýta undir minnkandi sölu.

 Fjármálaráðuneytið hefur ekki látið undan þrýstingnum og þess vegna hefur salan haldið áfram að dragast saman. En það er ekkert áfengisgjald á vímuefnamarkaði. Þar geta sölumenn, framleiðendur og innflytjendur lækkað verð til að mæta minni eftirspurn. Lækkun vímuefnaverðs bendir því til samdráttar á vímuefnamarkaði.

 

Og það ætti ekki að koma á óvart. Í könnunum erlendis hefur komið fram að tengsl eru á milli áfengissölu og eftirspurnar eftir ólöglegum vímuefnum. Ef áfengisneysla eykst þá eykst líka neysla á ólöglegum vímuefnum. Og ef áfengissala dregst saman þá dregur líka úr neyslu vímuefna. Ef þetta hefur verið raunin hér má rekja verðlækkun á vímuefnum til minni eftirspurnar í kjölfar verðhækkunar og minnkandi neyslu á áfengi.

 

 

 

 

   Línurit III: Samanburður á verðþróun hass, amfetamíns og kókaíns 2007-2011

 

Til að sýna verðþróun einstakra vímuefna á undanförnum árum getur verið betra að draga saman upplýsingar yfir lengra tímabil til að draga úr sveiflum sem kunna af stafa að smæð úrtaksins í hverjum mánuði. Ef við tökum meðalverð hass, amfetamíns og kókaíns á föstu verðlagi síðustu fimm árin og núllstillum þetta árið 2007 kemur í ljós að hlutfallslega verðlækkun hélt áfram fram til 2008 en þá hækkaði hass mikið, amfetamín aðeins en kókaín hélt aðeins verðgildi sínu.

Verð á kókaín — tískudópi góðærisins — hefur nánast legið flatt síðan þá. 2010 lækkaði amfetamín mikið og hass nokkuð. Hassið elti síðan verðlækkun amfetamíns á þessu ári.

 

Hægt er bera saman verðþróun milli einstakra efna í verðkönnunum SÁÁ. Ef við berum þannig saman verð á grasi og hassi kemur í ljós sterk tengsl; annað eltir hitt.

 

 

   Línurit IV: Samanburður á verði hass og grass frá miðju ári 2006 til október 2011

 

 

Eins og sjá má af þessu línuriti þá hækkar gras ekkert síður en hass við gengisfall krónunnar. Verðþróun þessara tveggja kanabis-efna bendir því ekki til að gengisþróun eða flutningur á framleiðslu til landsins

hafi raskað samkeppnisstöðu milli þessara efna.

 

Samanburður á verðþróun amfetamíns og rítalíns sýnir allt annað.

 

   Línurit V: Samanburður á verðþróun rítalíns og amfetamíns 2006 til 2011

Hér má sjá að verð á amfetamíni hefur sveiflast nokkuð frá 2006; hækkað um allt að 75 prósent en síðan lækkað aftur. Það er nú aðeins 10-15 prósent dýrar en 2006. Rítalín hefur hins vegar hækkað mun meira eftir Hrun og um tíma var það selt á allt að fjórföldu verði miðað við verð ársins 2006. Það er erfitt að ráða í þennan mun; en svo virðist sem aukin eftirspurn eftir rítalíni hafi ýtt undir verðhækkun á sama tíma og eftirspurn eftir amfetamíni dróst saman. 

 

SÁÁ hefur nú hafið samstarf við Datamarket um birtingu tölfræðilegra gagna. Á næstu vikum og mánuðum munum við birta með þessum hætti nýjar upplýsingar úr gagnagrunnum SÁÁ. Upplýsingarnar verða felldar inn í greinar en jafnframt gerðar aðgengilegar öllum sem vilja skoða þær nánar.

 

Þeim sem vilja kynna sér betur verð og verðþróun á vímuefnamarkaði er bent á eftirtaldar leiðir að gögnunum:

Verð á vímuefnum (hrátölur)

Verð á vodka og bjór (hrátölur)

Verð á vímuefnum (meðaltal undanfarinna 6 mánaða)

Verð á vodka og bjór (vímuefnameðaltal bygggt á 6 mánaða meðaltali)

Verð á vímuefnum (á föstu verðlagi m.v. neysluvístölu)

Verð á vodka og bjór (á föstu verðlagi m.v. neysluvístölu)

Samanburður vísitalna neyslu, áfengis og vímuefna (ársmeðaltal)

Verð á áfengi á föstu verðlagi (ársmeðaltal)

Verð á vímuefnum á föstu verðlagi (ársmeðaltal)

 

 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...