Tilkynning /
19. janúar 2012 / 08:10
Heiðursmenn á Vogi
Heiðursmenn SÁÁ funda á fimmtudaginn 19. janúar 2012 kl 12 á Vogi. Gestur fundarins er Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ.
Gunnar ætlar að fara yfir hvernig landslag í meðferðarmálum hefur breyst og velta fyrir sér hlutverki SÁÁ. Þar verður snert á málum eins og búsetuúrræði, þjónustu fyrir aldraða, fjölskyldunni, langtímameðferð, ástandi sjúklinga sem koma til meðferðar og fjáröflunaraðferðir. Þórarinn Tyrfingsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs, verður annar ræðumaður. Vonandi verða fjörlegar umræður og ættu Heiðursmenn að geta lagt margt gott til málanna.
Fundurinn verður hefðbundinn og hefst venju samkvæmt kl 12.00 á sjúkrahúsinu Vogi.
Heiðursmenn hafa sannað sig sem öflugur bakhjarl SÁÁ og mikilvægt er að starfið sé lifandi og kröftugt. Skorað er á heiðursmenn SÁÁ að mæta og taka með sér gesti.