SÁÁ
Viðburður / 
4. febrúar 2012 / 20:28
Senda á Facebook

Uppistandskvöld UNGSÁÁ!

Uppistandskvöld UNGSÁÁ verður

þriðjudaginn 7. febrúar í VON, Efstaleiti.

Þá er komið að því! Uppistandskvöld UNGSÁÁ verður þriðjudaginn 7. febrúar í VON, Efstaleiti 7. Húsið opnar 20:30 og uppistand byrjar á slaginu 21:00!

 

Fram koma:

Ari Eldjórn

Jói

Erna Dís

Þorsteinn Guðmundsson

Pétur Jóhann

 

Þetta er kvöld sem þú vilt sko ekki missa af! Heitt kaffi á könnunni og meðví og auðvitað er frítt inn :-) sjá viðburð á facebook

 

PS. Hægt verður að skrá sig í Hina árlegu brettaferð UNGSÁÁ á staðnum. Aðeins er hægt að skrá sig með greiðslu og kostar 8.000 í ferðina.. sem er auðvitað gjöf en ekki gjald, enda allt innifalið í þetta smáræði!

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.