SÁÁ
Viðburður / 
7. febrúar 2012 / 23:43
Senda á Facebook

Getur heimspeki gert þig heilbrigðan?

Vilhjálmur Árnason heimspekiprófessor ræðir um AA-stefnuna og skyldleika hennar við heimspekilegar hugmyndir.

Samtöl okkar um alkóhólisma og hitt og þetta hefjast aftur á miðvikudagskvöldið 8. febrúar í Edrúhöllinni, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7.

 

Að þessu sinni efnum við til samtals um alkóhólisma og heimspekina að... baki AA-stefnunni; hvaðan koma þessar hugmyndir, hvers vegna virkar þær og hvar má finna þær annars staðar í hugmyndaheimi okkar og menningu.

 

Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki, mun hefja samtalið og síðan svara spurningum og ræða efnið við gesti. Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, stjórnar samtalinu.

 

Samtalið hefst sem fyrr kl. 20:30 og verður slitið á slaginu 10:00. Allir eru hjartanlega velkomnir.

 

Bein útsending á vefnum!

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.