SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Viðburður / 
14. mars 2012 / 08:58
Senda á Facebook

Mánudagsbíó hjá SÁÁ: Midnight Cowboy

Bandarísk 1969

Leikstjóri: John Schlesinger

Leikarar: Dustin Hoffman, Jon Voight, Sylvia Miles

Enskur texti

Sýnd 19. mars kl. 21:00 í Von

 

Midnight Cowboy er byggð á samnefndri sögu eftir James Leo Herlihy, sem kom út fáeinum árum fyrr. Tvær aðrar sögur Herlihy höfðu áður ratað á tjaldið; unglingasagan Blue Denim og raunsæisdramað All Fall Down. Þar leikstýrir John Frankenheimer Warren Beatty í hlutverki Berry-Berry, myndarlegs ofbeldismann sem dregur konur á tálar. Berry-Berry þvælist um á flótta undan drottnandi föður sem var langt leiddur alkóhólisti.

 

Joe Buck, aðalpersóna Midnight Cowboy, er líka fjallmyndarlegur maður, einfeldningur sem kemur til stórborgarinnar til að starfa sem karlhóra. Herilhy sjálfur var fjallmyndarlegur; hann var leikari, kennari, höfundur, gleðimaður, samkynhneigður og hellti sér út frjálslegt líf hippaáranna þótt hann væri í raun af annarri kynslóð; var frekar bitnikk en hippi. Sjöundi áratugurinn var hans besti tími; þá gaf hann út bækur sem urðu að vinsælum kvikmyndum. Hann gaf ekkert út eftir 1971, hvarf að mestu; skipti meira að segja um nafn til að þurfa ekki að svara fyrir Midnight Cowboy. Hann skaut sig síðan 66 ára gamall; tuttugu og tveimur árum eftir að hann gaf út sína síðustu bók. Hann skyldi ekki nein verk eftir; aðeins hugmyndir af sögum sem hann nefndi í bréfum til vina. Hann virðist því hafa brunnið upp á hippaárunum.

 

Kvikmyndin Midnight Cowboy er einn af hátindum skammvinns raunsæisskeiðs í Hollywood á sjöunda áratugnum og sem náði aðeins fram eftir þeim áttunda. Þetta skeið varð til við ris mannréttindabaráttu svartra, kvennabaráttu og baráttu annarra hópa fyrir viðurkenningu og rétti. Kvikmyndagerðamenn sóttust eftir sögum þar sem aðalpersónurnar voru fólk úr þjóðfélagshópum, sem áður höfðu vart sést í bíómyndum nema þá sem aukapersónur og þá dregnar einfeldningslegum línum og fordómafullum.

 

Joe Buck (Jon Voight) og Ratzo (Dustin Hoffman) þóttu undarlegar aðalpersónur í bíómynd 1969; karlhóra og heróínfíkill. Sagan greinir frá lífsbaráttu þeirra og hvernig þeir berjast við að halda reisn við lakar og nánast óbærilegar aðstæður. En þótt aðstæður þeirra séu bágbornar þá hverfist framvinda sögunnar um mannleg gildi; vináttu, fórnfýsi og reisn.

 

Midnight Cowboy fékk Óskarsverðlaunin fyrir besta handrit og bestu leikstjórn og var valin besta myndin (þetta var á þeim árum þegar góðar myndir unnu Óskarinn). Midnight Cowboy er eina myndin sem hefur fengið Óskarinn þrátt fyrir að verið bönnuð innan 18 ára í Bandaríkjunum.

 

Hvorki Dustin Hoffman né Jon Voight fengu Óskarsverðlaun, sem er í raun stórundarlegt (John Wayne fékk verðlaunin fyrir True Grit)

 

Sjá mánudagsbíó SÁÁ

 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.