SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Viðburður: Leikhúsferð / 
1. júní 2012 / 08:28
Senda á Facebook

Þjóðleikhúsið styrkir SÁÁ: Dagleiðin langa

Málverk af Eugene O'Neill 

 

Miðvikudaginn 30. maí verður í Von Samtal um alkóhólismann í Dagleiðinni löngu og þar mun Þórhildur ræða um leikritið, Illugi Jökulsson um höfundinn og hans alkóhólisma og Valgerður Rúnarsdóttir um alkóhólisma persónanna. 

Þjóðleikhúsið hefur af rausnarskap sínum gefið SÁÁ þrjár sýningar á meistaraverki Eugene O'Neill; Dagleiðin langa. Fyrsta sýningin er sunnudaginn 3. júní, sú næsta miðvikudaginn 6. júní og sú síðasta fimmtudaginn 7. júní.

 

Leikritið fjallar fjölskyldu sem er þjökuð af alkóhólisma. Það gerist á miklum átakadegi í lífi Tyrone-fjölskyldunnar, hjóna og tveggja uppkominna sona þeirra. Fjölskyldan er þrúguð af ægivaldi fjölskylduföðurins, og áfengissýki og lyfjaneysla varpa dimmum skuggum á öll samskipti. Fjórar skemmdar manneskjur sem standa máttvana gagnvart erfiðum aðstæðum kunna engin ráð betri en að ásaka hver aðra og brjóta hver aðra niður á milli þess sem þær tjá ást sína og umhyggju.

 

Bandaríska fíknirannsóknastofnunin, NIDA, hefur notað kafla úr þessu verki til að opna augu heilbrigðisstétta fyrir því hvernig alkóhólismi getur birst á mismunandi hátt og hversu illa hann leikur fjölskyldur. Leikritið er því bæði meistaraleg list en líka ótrúlega glögg mynd af sjúkdóminum og birtingarmyndum hans.

 

Uppfærsla Þórhildar Þorleifsdóttur og frábær frammistaða leikaranna; Arnar Jónssonar, Guðrúnar Gísladóttur, Hilmis Snæ Guðnasonar og Atla Rafns Sigurðssonar, gera þessa sýningu að einni betsu leiksýningu ársins. (Við spáum henni Grímunni.)

 

Miðaverð er kr. 4.300 og rennur það óskipt til Barna- og fjölskyldudeildar SÁÁ. Hægt er kaupa miða í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti eða í gegnum síma 5307600 (miðarnir verða þá afhentir við dyrnar á sýningardegi).

 

Þetta er einstakt tækifæri fyrir áhugafólk um áfengis- og vímuefnavandann til að kynnast einu besta listaverki sem fjallar um sjúkdóminn og styrkja SÁÁ í leiðinni.

 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.