- kvikmyndahátíð í samvinnu við SÁÁ
í Bíó Paradís 24.-29. maí 2012

Þema kvikmyndahátíðarinnar „Skemmd epli“ sem fram fer í Bíó Paradís dagana 24.-29. maí, er fólk í barátttu við bresti sína á einn eða annan hátt. Sýndar verða fjórar nýjar og nýlegar kvikmyndir sem vakið hafa mikla athygli á undanförnum misserum. Þrjár koma frá Norðurlöndunum, Applause, Svinalängorna og Submarino en opnunarmyndin og sú allra nýjasta, Tyrannosaur, kemur frá Bretlandi. Hægt verður að nálgast miða á Midi.is.
TYRANNOSAUR
Bretland, 2011
Leikstjóri: Paddy Considine
Aðalhlutverk: Peter Mullan, Olivia Colman
Sjá sýningartíma..
Opnunarmynd hátíðarinnar er þessi magnaða og afar áhrifamikla mynd segir af ekklinum Jósef sem er atvinnulaus og þjakaður af ofbeldishneigð og reiði sem er að leggja líf hans í rúst. Hann þráir ekkert heitar en að breyta lífi sínu en sér ekki hvernig. Jósef kynnist Hönnu sem starfar í búð sem rekin er á vegum hjálparsamtaka í hverfinu. Með þeim takast góð kynni og Jósef byrjar að eygja von um að geta breytt lífi sínu til betri vegar. Hanna virðist heilbrigð og kærleiksrík kona sem iðkar trú sína og vill öllum vel en hún býr yfir þrúgandi leyndarmáli sem gæti orðið til að draga Jósef aftur til fyrri hátta.
Tyrannosaur er fyrsta mynd hins kunna breska leikara Paddy Considine (Last Resort, 24hr Party People, In America) og hefur hlotið hátt á þriðja tug verðlauna víða um heim, þar á meðal á Sundance hátíðinni, BAFTA verðlaununum, og British Independent Film Awards. Með aðalhlutverkin fara Peter Mullan og Olivia Colman, sem bæði hafa verið marglofuð og verðlaunuð fyrir frammistöðu sína í myndinni.