SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Viðburður: Þurrir miðvikudagar / 
23. maí 2012 / 18:49
Senda á Facebook

Samtal um alkóhólisma og konur IV: Fyrirgefning og vald

Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir

Síðasta samtalið um konur & alkóhólisma verður miðvikudagskvöldið, 23. maí klukkan 20:30 í Von í Efstaleiti. Þar verður fjallað um konur og fjölskyldulægni sjúkdómsins. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent í guðfræðilegri siðfræði við guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands mun tala um fyrirgefninguna og setja hana í valdasamhengi.

 

Samtalið verður í beinni útsendingu á vef SÁÁ.

 

Hún segir m.a. annars um fyrirlestur sinn í viðtali við SÁÁ blaðið: „Ef valdajafnvægið hefur ekki breyst og er eins og þegar ofbeldið fór fram þá er ekki um að ræða fyrirgefningu nema þau valdahlutföll breytist. Sá sem er valdaminni og brotið hefur verið á á ekki að fyrirgefa þeim valdameiri sem er áfram í þeirri stöðu að vera valdameiri. Ég tek þetta inn í Nýja testamentið og er með dæmi. Þegar Jesú hangir á krossinum þá fyrirgefur hann ekki heldur segir faðir á himnum mun fyrirgefa ykkur. Þar af leiðandi er boðskapurinn á þá lund að létta af þeirri kvöð af fórnarlömbum að þau verði að fyrirgefa í þeirri stöðu þar sem enginn hefur beðið um fyrirgefningu og valdastaðan er óbreytt. Þar sem aldrei hefur orðið nein sátt eða breyting þá þurfi menn ekki að fyrirgefa. Siðferðilegi boðskapurinn er þar af leiðandi að hjálpendur eigi ekki að knýja á um að fórnarlömb fyrirgefi,“ segir Sólveig Anna.

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.