Tilkynning: Heiðursmenn funda á Vogi /
23. maí 2012 / 22:42
Gunnar Smári Egilsson gestur Heiðursmanna
 |
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ | |
Síðasti fundur Heiðursmanna þennan vetur verður á fimmtudaginn 24. maí. Gestur fundarins verður Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ. Fundurinn hefst venju samkvæmt kl. 12:00 á sjúkrahúsinu Vogi.
Nú er liðið um það bil eitt ár frá því Gunnar Smári tók við sem formaður SÁÁ og er óhætt að segja að hann hafi hleypt fersku blóði í starfssemi SÁÁ.
Gunnar ætlar að rifja upp liðið ár og ræða svo um hvernig Heiðursmenn gætu eflst til muna sem bakhjarl SÁÁ.
Gott væri að sem flestir mættu á fundinn til að geta tekið þátt í umræðunni og leggja þannig sitt á vogarskálarnar til að efla Heiðursmenn.
Heiðursmenn hafa sannað sig sem öflugur bakhjarl SÁÁ og mikilvægt er að starfið sé lifandi og kröftugt. Skorað er á Heiðursmenn SÁÁ að mæta og taka með sér gesti.