SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Kiriyama Family spila 4. ágúst / 
24. júlí 2012 / 13:42
Senda á Facebook

Vinsælasta bandið á Íslandi í dag

Þétt hljómsveit

Kiriyama Family skipa þeir Guðmundur Geir Jónsson, Karl Magnús Bjarnarson, Víðir Björnsson, Jóhann Vignir Vilbergsson og Bassi Ólafsson.

Kiriyama Family!

Lagið Weekend trónir nú á toppi vinsældarlista Rásar tvö.

 

 ,,Jú, jú, ef þú miðar við vinsældarlista Rásar tvö þá er það kannski rétt,” segir Guðmundur Geir Jónsson um þá fullyrðingu að þeir séu vinsælasta hljómsveitin á Íslandi í dag en hann og hinir fimm félagar hans í Kiriyama Family munu troða upp á Kaffi, kökum og rokki & róli á Edrúhátíðinni að Laugalandi um Verslunarmannahelgina.

 

Kiriyama Family gáfu út samnefnda plötu fyrr á árinu og hún hefur heldur betur slegið í gegn. Lagið Weekend hefur verið á toppi vinsældarlista Rásar síðustu vikur en sveitin ku vera það besta, tónlistarlega séð, sem hefur komið frá Selfossi. Gummi hlær reyndar að þeirri fullyrðingu og segist vera sá eini frá Selfossi. Hinir eru nærsveitamenn.

 

Battle Royal

En hvaðan kemur þetta nafn? Eða er það eitthvað sem er alltaf verið að spyrja ykkur að í viðtölum?

,,Reyndar ekki. Þetta úr japönsku skáldsögunni Battle Royal.”

Já, eru þið kannski fyrsta World of Warcraft bandið?

,,Nei, við völdum snemma að gera eitthvað viturlegra við tímann okkar og höfum flestir verið spila á hljóðfæri síðan við vorum smápollar. Sumir okkar hafa verið hljómsveitum síðan við vorum tólf ára,” svarar Gummi skilmerkilega en strákarnir þekkja hvern annan úr Fjölbrautarskóla Suðurlands. Þeir byrjuðu samt ekki að spila saman sem Kiriyama Family fyrr en eftir útskrift – í bílskúr á Selfossi fyrir tveimur árum.

 

Mússík sem þeir fíla

Og verðiði þéttir um verslunarmannahelgina?

,,Við erum búnir að spila um hverja helgi í allt sumar og þéttumst með hverri helginni,” útskýrir Gummi og segist aðspurður ánægður með að fólk sé að fíla tónlistina þeirra. Hann þakkar fyrir það en upplegg hljómsveitarinnar er að búa til mússík sem þeir sjálfir myndu hlusta á.

 

 

 

 

Hvað: Tónleikar að Laugalandi Holtum

Hvenær: Laugardagskvöldið 4. ágúst

Klukkan: 23.00

 

Sjá einnig

SÁÁ blaðið og

dagskrá í mótun

 

Í vetur sló fyrirbærið kaffi, kökur og rokk & ról heldur betur í gegn í Von, Efstaleiti 7, en um er að ræða magnaða tónleikaröð í þessum góða sal SÁÁ. Þar hafa allar helstu og bestu hljómsveitir Íslands spilað við mikinn fögnuð. Um Verslunarmannahelgina verður sannkölluð uppskeruhátíð fyrir þetta fyrirbæri að Laugalandi í Holtum en í vetur heldur þessi tónleikaröð áfram í Von.

 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.