SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Ylja stefnir að breiðskífu í haust / 
25. júlí 2012 / 09:37
Senda á Facebook

Edrúhátíð: Kassagítar og raddir

Ylja

Bjartey Sveinsdóttir og Guðný Gígja Skjaldardóttir.

Hljómsveitin Ylja varð til árið 2007 þegar leiðir Bjarteyjar Sveinsdóttur og Guðnýjar Gígju Skjaldardóttur lágu saman. Með sameiginlegan áhuga á kassagítarleik og rödduðum söng að vopni lögðu þær upp í tónlistarlegt ævintýri sem hefur sífellt tekið á sig nýjar myndir. Fyrstu árin voru þær stöllur iðnar við að koma fram víðs vegar um landið og bættu í reynslubankann með hverjum mánuðinum. Ylja kom meðal annars fram á Bræðslunni á síðasta ári og hitaði einnig upp fyrir írska tónlistarmanninn Glen Hansard.

 

Bjartey og Guðný Gígja fengu síðan liðsauka þegar slide-gítarleikarinn Smári Tarfur Jósepsson bættist í hópinn á síðasta ári. Ylja vinnur nú að sinni fyrstu breiðskífu en tvö lög af henni, Konan með sjalið og Á rauðum sandi, hafa ómað á öldum ljósvakans síðustu mánuði. Frumburður hljómsveitarinnar mun koma út í haust en áhugasamir geta farið á Youtube og hlustað á lög þeirra.

 

 

 

 

Hvað: Tónleikar

Hvenær: Laugardagskvöld

Klukkan: 21.00

 

Sjá einnig SÁÁ blaðið

og dagskrá í vinnslu

 

Í vetur sló fyrirbærið kaffi, kökur og rokk & ról heldur betur í gegn í Von, Efstaleiti 7, en um er að ræða magnaða tónleikaröð í þessum góða sal SÁÁ. Þar hafa allar helstu og bestu hljómsveitir Íslands spilað við mikinn fögnuð. Um Verslunarmannahelgina verður sannkölluð uppskeruhátíð fyrir þetta fyrirbæri að Laugalandi í Holtum en í vetur heldur þessi tónleikaröð áfram í Von.

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.