SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Lifandi spilamennska á hug Smára allan / 
25. júlí 2012 / 10:47
Senda á Facebook

Sálar-, þjólaga, rokk- og popptónlist á Edrúhátíð

Tónlistarmaðurinn Smári Tarfur Jósepsson hefur víða komið við en lengi vel var hann þekktur meðal þungarokkara á Íslandi. Þá gerði hann stans í rapprokksveitinni Quarashi og var þeim til fulltingis er útgáfur og tónleikaferðalög um hin stóra heim voru tíð hjá þeim. Smári söðlaði síðan um, færði sig yfir á kassagítar og stofnaði dúettinn Hot Damn! ásamt Jens Ólafssyni (Jenna úr Brain Police). Það var svo fyrir fáeinum árum að slidegítarleikur í kjöltustíl varð mikið áhugamál hjá Smára og leitaðist hann við að syngja yfir eigin gítarleik – eitthvað sem hann hafði ekki verið þekktur fyrir hingað til. Tónlistin er einhvers konar blanda af sálar-, þjóðlaga, rokk- og popptónlist með smá blúskeim og er mikil upplifun fyrir áheyrendur enda á lifandi spilamennska á hug hans allan um þessar mundir.

 

 

Hvað: Tónleikar

Hvenær: Föstudagskvöld

Klukkan: 20.00

 

Sjá einnig SÁÁ blaðið

og dagskrá í vinnslu

 

Í vetur sló fyrirbærið kaffi, kökur og rokk & ról heldur betur í gegn í Von, Efstaleiti 7, en um er að ræða magnaða tónleikaröð í þessum góða sal SÁÁ. Þar hafa allar helstu og bestu hljómsveitir Íslands spilað við mikinn fögnuð. Um Verslunarmannahelgina verður sannkölluð uppskeruhátíð fyrir þetta fyrirbæri að Laugalandi í Holtum en í vetur heldur þessi tónleikaröð áfram í Von.

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.