Svavar Pétur er forsprakki Prins Póló /
25. júlí 2012 / 11:04
Edrúhátíð: Prins póló púnktur komm
Svavar Pétur Eysteinsson listamaður hefur verið gera mússík með Skakkamanage og Létt á bárunni og fleirum síðustu ár en sólóverkefni hans kallast Prins Póló. Sú grúbba reið á vaðið þegar Kaffi, kökur og rokk & ról hófst í fyrra haust í Von, Efstaleiti 7, og á sunnudagskvöldinu fáum við heyra og sjá Svavar. Ef þú þekkir ekki mússíkina er hægt að kíkja á www.prinspolo.com og sjá myndböndin og fleira.
Hvað: Tónleikar
Hvenær: Sunnudagskvöld
Klukkan: 00.00
Sjá einnig SÁÁ blaðið
Sjá dagskrá í mótun
Í vetur sló fyrirbærið kaffi, kökur og rokk & ról heldur betur í gegn í Von, Efstaleiti 7, en um er að ræða magnaða tónleikaröð í þessum góða sal SÁÁ. Þar hafa allar helstu og bestu hljómsveitir Íslands spilað við mikinn fögnuð. Um Verslunarmannahelgina verður sannkölluð uppskeruhátíð fyrir þetta fyrirbæri að Laugalandi í Holtum en í vetur heldur þessi tónleikaröð áfram í Von.