 |
Örvar Kristjánsson
Ball fyrir alla á sunnudagskvöldinu. | |
Þeir eiga von á góðu, alkóhólistarnir og gestir þeirra á úthátíðinni sem SÁÁ stendur fyrir um Verslunarmannahelgina (sjá
SÁÁ blaðið) en þar skemmtir sannkölluð goðsögn í lifanda lífi eða, enginn annar en harmónikkuleikarinn og söngvarinn Örvar Kristjánsson.
„Já, ég verð þarna að spila með Hilmari Sverrissyni vini mínum, sem var lengi með Geirmundi Valtýssyni og er þekktur maður í bransanum – hljómborðsleikari og söngvari mikill. Við ætlum að kyrja gömlu lögin, alveg við raust, spila í tvo og hálfan tíma fyrir þá,“ segir Örvar hinn hressasti.
Örvar hefur verið lengi að, sennilega eru fáir ef nokkrir sem státa af eins löngum ferli. Hann var aðeins sex ára þegar hann fór að spila á nikkuna og á fermingardaginn sinn spilaði hann fyrsta sinni fyrir dansi. „Já, þá var fyrsta ballið. Á Hornafirði en þar ólst ég upp. Ég hef spilað fyrir dansi í 60 ár og hélt uppá það með börnunum mínum í Kópavogi fyrir ekki svo löngu. Á Catalinu.“ Synir Örvars eru meðal annars tónlistarmennirnir Grétar, Karl og Atli Övarssynir.
Hversu mörg börn áttu?
„Ég á slatta af þeim.“
Já, hversu mörg?
„Það er tala sem ég hef út af fyrir mig. Og barnabörn, maður lifandi, heilan her.“
Hætti að drekka og reykja af sjálfsdáðum
Örvar hlær þegar hann er spurður hvort það hafi ekki verið svo að menn hafi verið drykkfelldir þeir sem voru (og eru) í tónlistarbransanum. Honum finnst þetta heimskuleg spurning. „Jú, maður lifandi. Þetta hefur lengi loðað við bransann. Þegar maður var að spila á þorrablótum í gamla daga þá komu hangikjötslærin og brennivínsflöskurnar rúllandi inná sviðið. Menn þóttu ekki gjaldgengir fyrr.“
Sjálfur segist Örvar hættur að drekka og reykja og það er langt síðan. „Svoleiðis. Eða ég kalla það. Ég hef ekki drukkið sterkt vín í 25 ár. Og hætti að reykja líka. Á tímabili hef ég sjálfsagt átt í vandræðum með þetta. Þó ég hafi ekki viljað viðurkenna það. Ég drakk mikið en hætti af sjálfsdáðum.“ Örvar segir að giggið um Verslunarmannahelgi sé ekki það fyrsta sem hann tekur fyrir SÁÁ. „Ég fór einu sinni fyrir langa löngu með Grétari og spilaði á Silungapolli. Og svo hef ég spilað í félagsheimili þeirra líka. SÁÁ eru algjörlega frábær samtök.“
Alltaf húsfyllir þegar Guðni skemmtir
Örvar elur helst manninn úti á Spáni, nánar tiltekið á Kanaríeyjum, þar sem hann hefur spilað fyrir gesti og gangandi í tuttugu ár. „Ensku ströndinni. Það er löng saga að segja frá hvernig það kom til, mér var boðið til Kanarí með því skilyrði að ég spilaði á jóladansleik sem þeir eru alltaf með þarna. En, þetta æxlaðist svona, ég fór í kjölfarið að spila á Klörubar fyrir hana Klöru Baldursdóttur. Ílengdist þar og spilaði þar í ein tólf ár.“ Aðspurður segist Örvar þó aldrei mæta á fræga Framsóknarfundi sem þar eru haldnir. Nema helst þegar Guðni Ágústsson er á staðnum. „Hann talar ekkert um pólitík heldur er bara að skemmta. Alltaf húsfyllir þegar hann treður upp. En, svo seldi Klara ég fór að spila á norskum bar sem heitir Trollstuen, eða Tröllastofa. Svo var ég á milli vita, en fór þá á hæðina fyrir ofan Klörubar, á Skansen, sem er sænsk/spánskur staður. Stærsti skemmtistaðurinn þarna. og þar er ég núna.“
Siríbiríbimm
Övar spilar á nikkuna og syngur fyrir þá sem koma til Kanarí. „Svo bý ég mér til bakspil, sem Birgir Jóhann Birgisson gerir fyrir mig. Eins og ég sé með fimm manna band á bak við mig. Syng og spila, bæði dinner- og dansmúsík. Tek svona vinsælustu lögin, ég verð að spila interneisjónal músík því þarna eru allra þjóða kvikindi. En spila íslenska músík inná milli. Þetta eru sívinsæl lög og svo gömul sem ég endurvek eins og Ramóna og Siribiríbimm, bambambambam.“
Örvar unir hag sínum vel úti á Spáni, er þar aldrei minna en sex mánuði á ári. „Ég mun aldrei hætta að fara þangað. Miklu betra fyrir ellilífeyrisþega að lifa þar en hér. Á Kanarí.“
JBG
Tekið úr Fréttatímanum
Sjá dagskrá í mótun