SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Edrúhátíð um verslunarmannahelgina / 
30. júlí 2012 / 17:33
Senda á Facebook

Dagskrá frá föstudegi til mánudags

 

MATARHÁTÍÐ ALLA DAGA

Hátíðin er sérstök matarhátíð og gæðakaffi frá Kaffitár (alvöru espressó og latte og allt það) verður í boði. Þarna verður tælensk matstofa ásamt því sem Þórir Bergs og Ágúst Garðarsson munu reka eldhús og veitingastað þar sem ódýr veislumatur verður í boði.

 

Morgunmatur kl 8-10 alla daga á 500 kall, matarmikil edrúsúpa í hádeginu kl 12-14 á þúsund kall og risa grill dinner kl 18-20 laugardag og sunnudag á 1.500 kall. Ókeypis fyrir börn yngri en 6 ára og til 12 borga krakkarnir hálfvirði.

 

Tælensk matstofa

Á Edrúhátíðinni verður hent upp tælenskri matstofu eins og þær gerast bestar í Reykjavík. Verðum er að sjálfsögðu stillt í hóf.

 

 

 

Morgunjóga (fyrir alla) hefst klukkan 10:00 laugardag og sunnudag.

 

Jóhannes Karlsson er titlaður sandan en það þýðir að hann er með svarta beltið, þriðja dan og um helgina ætlar hann að vera með sérstaka kynningu á karate kl. 13:00 á laugardag.

 

5 rytma dansinn kl. 17.00 á laugardeginum sameinar kynslóðirnar.

 

Svo verður farið í nestisferð með alla krakkana kl. 11.00 á sunnudeginum.

 

Sober Riders sýna flottu mótarhjólin sín kl. 14.00 á sunnudeginum.

 

Mannakorn og Örvar Kristjánsson

Það þarf varla að kynna Mannakorn en allar kynslóðir geta unað sér við tóna frá þeim Magga Eiríks og Pálma Gunnarssyni. Þeir leika á laugardagskvöldinu kl 22.00.

 

Á sunnudagskvöldið kl. 20 sláum við upp balli, samkvæmisdansiballi með Örvari Kristjánssyni sem er fyrir alla, unga sem aldna.

 

Brekkusöngur

Valgeir Skagfjörð tónlistarmaður verður með brekkusönginn á útihátíðinni á Laugalandi í Holta- og Landssveit í ár kl 23:00 á sunnudagskvöldinu.

 

Hjalti Björnsson, dagskrárstjóri SÁÁ, stendur fyrir Heklugöngu fyrir alla vel fríska göngumenn mánudaginn 6. ágúst. Lagt af stað klukkan 8:00.

BARNAHÁTÍÐ

Strax á föstudagskvöldinu kl. 20 er löng hefð fyrir bingó. Allir velkomnir og tilvalið að safnast öll saman og taka þátt. Bingóstjóri er Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ.

 

Íþróttaálfurinn mætir á svæðið klukkan 13:00 á laugardag!

 

Listasmiðja barna

Á Edrúhatíðinni er löng hefð fyrir listasmiðju fyrir krakkana. Þá fá krakkarnir leiðsögn og mála myndir og finna upp á ýmsu skemmtilegu saman. Laugardagur og sunnudagur 13-15.

 

Graffiti

Sem hluti af listasmiðju barna verður þeim unglingum sem það vilja boðið að taka þátt í graffiti listasmiðju en graff hefur lengi verið partur hinni svokölluðu hip hop menningu og mjög vinsælt listform á meðal ungs fólks. Laugardagur og sunnudagur 13-15.

 

Knúskeppni

Eitt af þeim atriðum sem slógu í gegn í fyrra var knúskeppni sem keppt var í alla helgina. Þá fá krakkar (og þeir fullorðnir sem það vilja) sérstök knús eyðublöð og reyna að fá sem flest knús yfir helgina. Knúskeppnin verður sett klukkan 16:00 á laugardeginum. Knúsarar kvitta fyrir knúsin og síðasta kvöldið eru veitt sérstök verðlaun fyrir Knúsmeistara 2012.

 

Ratleikur og reipitog

Líkt og síðustu ár verður margt í boði fyrir yngstu krakkana. Farið verður í skipulega leiki, ratleiki og reipitog, auk þess sem það sparkvöllur þarna og því verður smalað í fótboltamót og svo er auðvitað sundlaug á staðnum og mjög góðir leikvellir. Tjaldstæðið og svæðið í heild sinni sem er mjög barnvænt og tilvalið að skemmta sér edrú með börnunum um Verslunarmannahelgina. Skipulagðir leikir verða frá 16-18 laugardag og sunnudag.

 

Ingó töframaður á ýmis krassandi töfrabrögð sem hann ætlar að draga úr pússi sínu á Laugalandi um verslunarmannahelgina. Laugardagur kl 20:00

 

Leikritið Pína pokastelpa

Um helgina mun leikritið Pína pokastelpa einnig vera sett upp undir berum himni ef veður lofar. Um er að ræða skemmtilegt leikrit fyrir alla krakka sem verður nánar kynnt á hátíðinni. Sunnudag kl 16:00.

 

Söngkeppni barnanna

Allir krakkar fá að vera með. „Í fyrra skráðu sig tuttugu börn og öll fengu kynningu og komu á sviðið með pompi og prakt,“ segir Valgeir Skagfjörð tónlistarstjóri. Söngkeppni og úrslit í knúskeppni sunnudagskvöld kl. 20:00

 

 

 

 

 

 

 

 

 

HUGLEIÐSLA, FUNDIR OG FYRIRLESTRAR

(Ekki aðeins eru í boði 12 sporafundir og kynningar á 12 sporasamtökum á örfárra klukkutíma fresti heldur er hátíðin líka mjög andleg og við höfum komið upp sérstöku hugleiðsluherbergi að Laugalandi þar sem við verðum með fyrirlestra, kynningar og æfingar fyrir alla sem vilja prófa eitthvað nýtt.)

 

Á laugardeginum frá 13-16 verður boðið upp á jógakennslu hjá Unni Arndísardóttur en hún verður líka með tónaheilun í boði fyrir þá sem það vilja og les í tarotspil ef svo ber undir.

 

Það er fleiri geðveikir en alkar. Óttar Guðmundsson geðlæknir fjallar um geðveiki í Íslendingasögunum. Laugardagur kl 14:00.

 

Beggi Morthens kynnir okkur fyrir og leiðir hugleiðslu kl. 16 á laugardeginum.

 

Gunnar Eyjólfsson kemur á sunnudaginn kl 10:30 og kynnir Qi gong fyrir okkur.

 

Lotushús verður með hugleiðslu-kynningu á sunnudeginum kl 12:00.

 

Örninn Össi mun leiða okkur í allan sannleika um Kirtan kl 13:00 á sunnudag.

 

Gunnar L. Friðriksson ætlar að kynna Mindfullness eða Núvitund á sunnudag kl. 17:00

 

Og á sunnudagskvöldinu leiðir Anna Sigríður Pálsdóttir æðruleysis-messu.

 

 

12 spora fundir

 

Föstudag

22:00 AA og NA

 

Laugardag

11:00 AA og CODA

00:00 NA og AA

 

Sunnudag

11:00 Blandaður speaker fundur

21:00 Blandaður speaker fundur

01:00 NA og AA

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjá einnig dagskrá/stundaskrá á pdf formi.

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.