Forvarna- og fjölskylduhús SÁÁ rís
Hið nýja hús SÁÁ við Efstaleiti, Forvarna- og fjölskylduhús SÁÁ, rís nú sem aldrei fyrr. Verklok eru samkvæmt áætlun 25. september á þessu ári.
Þann 6. júní sl. var verkstaða þannig að burðarvirki var lokið. Múrverki á 1. hæð var lokið nema í sal. Allri steypu var lokið í húsinu. Búið að flota að mestu leiti í kjallara, á 1. og 2. hæð. Verið var að setja upp vindfang v/anddyri. Búið að slípa misfellur af útveggjum og fjarlægja nagla og fl. Búið að setja upp kapalrennur á 1. og 2. hæð. Búið að draga í allar dósir á
fyrstu hæð. Verið að klára múrverk í kjallara. Búið að setja ásteypulag á þak. Verið var að setja upp ofna á 2. hæð. Unnið er við múrhúðun milliveggja í kjallara. Búið að einangra útiloft undir anddyri. Verið að grinda fyrir klæðningu í anddyri. Byrjað var að smíða stiga fyrir flóttaleið.
Unnið er við þakfrágang, gluggaísetningu, innveggi, þvott að utan, múrverk í kjallara, flotun á því sem eftir er.
Sjá teikningar af húsinu í eldri fréttum.